Landsskipulagsstefna
Umhverfisráðherra leggur fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra felur Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.
Í landsskipulagsstefnu eru samþættar áætlanir opinberra aðila um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra málaflokka sem varða landnotkun og er hún útfærð með tilliti til skipulags landnotkunar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Eftir því sem við á skal hafa svæðis- og aðalskipulagsáætlanir til hliðsjónar.
Skipulagsstofnun skal hafa aðgang að áætlunum annarra opinberrra aðila í einstökum málaflokkum sem varða landnotkun.
Þegar vinna að gerð landsskipulagsstefnu hefst tekur Skipulagsstofnun saman lýsingu á verkefninu þar sem gerð er grein fyrir þeim áherslum sem fyrirhugað er að hafa við gerð landsskipulagsstefnu, svo sem forsendum stefnunnar, viðfangsefni og fyrirhugaðri kynningu og samráði við mótun stefnunnar.
Við gerð landsskipulagsstefnu skal Skipulagsstofnun hafa samráð við sveitarfélög, þær stofnanir sem fara með þá málaflokka sem landsskipulagsstefnuna varða, Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök eftir því sem við á.
Landsskipulagsstefna getur tekið til landsins alls, einstakra landshluta og efnahagslögsögunnar. Í henni skal ávallt vera uppfærð stefna um skipulagsmál á miðhálendi Íslands
Sveitarfélög skulu taka mið af landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlana og breytinga á þeim, og eftir því sem við á, samræma þær landsskipulagsstefnu innan fjögurra ára frá samþykkt hennar.
Nánari upplýsingar um gerð og málsmeðferð landsskipulags má nálgast með eftirfarandi krækjum
Skipulagslög nr. 123/2010
Ný reglugerð um landsskipulagsstefnu nr. 1001/2011
