Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
Byggingar og framkvæmdir >> Yfirlit yfir aðila sem sinna byggingarmálum

YFIRLIT YFIR AÐILA SEM SINNA BYGGINGARMÁLUM

BRUNAMÁLASTOFNUN
Brunamálastofnun starfar á grundvelli laga um brunavarnir og brunamál.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Hefur yfirumsjón með eldvarnareftirliti og slökkvistarfi sveitarfélaga, samræmir brunavarnir í landinu, annast kynningar- og fræðslustarf fyrir almenning, slökkvilið og þá sem vinna að brunahönnun mannvirkja, yfirfer brunahönnun bygginga og rannsakar bruna. Er byggingar-yfirvöldum til ráðgjafar um eldvarnir mannvirkja og brunaöryggi vöru. Úrskurðar um brunaflokkun byggingarefna
Þjónusta / upplýsingar:
- Árleg skýrsla um orsakir og afleiðingar eldsvoða
- Brunarannsókir
- Leiðbeiningar um frágang brunavarnauppdrátta og ýmislegt sem lýtur að brunahönnun mannvirkja
- Listar yfir vöruviðurkenningar sem Brunamálastofnun hefur gefið út
- Ráðgjöf varðandi brunamál
- Upplýsingar um evrópska staðla á brunasviði (EN staðlar)


FASTEIGNAMAT RÍKISINS
Fasteignamat ríkisins starfar á grundvelli laga um skráningu og mat fasteigna.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Veitir upplýsingar um og annast skráningu og gerð brunabóta- og fasteignamats og sér um Landskrá fasteigna, miðlægan gagnagrunn um allar fasteignir í landinu (upplýsingar um þinglýsta eigendur, afmörkun, auðkenni, byggingarfræðileg atriði ásamt fasteigna- og brunabótamati). Sér um rannsóknir á fasteignamarkaðnum og gefur út niðurstöður þeirra athugana.
Þjónusta / upplýsingar:
- Tenging við Landsskrá fasteigna
- Fasteigna- og brunabótamat
- Verðsjá; upplýsingar um (meðal)verð íbúðarhúsnæðis samkvæmt gerðum kaupsamningum
- Leiðbeiningar um gerð eignaskiptayfirlýsinga og stofnun eignar


FORNLEIFAVERND RÍKISINS
Fornleifavernd ríkisins starfar á grundvelli þjóðminjalaga.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Hefur eftirlit með fornleifum og fornleifarannsóknum, sér um friðlýsingu og merkingu fornleifa, veitir leyfi fyrir fornleifarannsóknum, lætur skrá þekktar fornleifar og gefur út skrá um friðlýstar fornleifar.
Þjónusta / upplýsingar:
- Skrá yfir friðlýstar fornleifar
- Upplýsingar um skráðar fornleifar
- Umsagnir / fornleifaskráningar vegna skipulagsvinnu og framkvæmda.
- Fornleifarannsóknir, leyfi til fornleifarannsókna


HAGSTOFA ÍSLANDS
Hagstofan starfar á grundvelli laga um hagstofu Íslands, og ýmissa annarra laga.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Reiknar út og birtir vísitölu byggingarkostnaðar, safnar og vinnur úr skýrslum um landshagi Íslands.
Þjónusta / upplýsingar:
- Vísitala byggingarkostnaðar
- Hagtíðindi, mánaðarit
- Landshagir, ársskýrsla


HÚSAFRIÐUNARNEFND RÍKISINS
Húsafriðunarnefnd ríkisins starfar á grundvelli laga um húsafriðun.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Gefur álit og veitir leyfi vegna viðhalds, endurbóta, breytinga, flutnings, eða ef á að rífa, setja skilti og aðrar áletranir á friðuð hús. Veitir styrki úr húsafriðunarsjóði til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og öðrum mannvirkjum. Stuðlar að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.
Þjónusta / upplýsingar:
- Leyfisveitingar / umsagnir vegna breytinga á friðuðum húsum
- Húsaskrá, skrá yfir friðlýst hús á landinu
- Styrkir til viðhalds, uppbyggingar og uppmælinga eldri húsa
- Styrkir vegna húsafriðunar
- Leiðbeiningar um viðhald og endurbætur eldri húsa
- Rit um byggingarsögu


ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR
Íbúðalánasjóður starfar á grundvelli laga um húsnæðismál.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Veitir lán til íbúðarkaupa og byggingarframkvæmda, veitir lán eða styrki til að stuðla að tækninýjungum og öðrum umbótum í byggingariðnaði, fylgist með íbúðaþörf í landinu og áætlanagerð sveitarfélaga um þörf á íbúðarhúsnæði.
Þjónusta / upplýsingar:
- Lánveitingar fyrir íbúðarhúsnæði
- Upplýsingar um vaxtabætur, lán og kjör


IÐNTÆKNISTOFNUN
Iðntæknistofnun starfar á grundvelli laga um Iðntæknistofnun.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Að vinna að tækniþróun og aukinni framleiðni í íslenskum iðnaði.
Þjónusta / upplýsingar:
- Starfsnám, m.a. fyrir umsjónarmenn fasteigna
- Námskeið, m.a. um gæðastjórnun
- Vefrit um stofnun fyrirtækja
- Tenging við Lagnaval.is, upplýsingavef um val á lagnaefnum


KIRKJUGARÐARÁÐ
sjá heimasíðu Biskupsstofu
Kirkjugarðaráð starfar á grundvelli laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu og hefur yfirumsjón með kirkjugörðum landsins (áður skipulagsnefnd kirkjugarða).
Hlutverk varðandi byggingarmál: Samþykkir nýja og stækkun eldri kirkjugarða, aðstoðar og hefur eftirlit með skipulagi og lagfæringum á kirkjugörðum.
Þjónusta / upplýsingar:
- Umsagnir vegna framkvæmda og skipulags í nágrenni kirkjugarða
- Meðmæli með styrkveitingum úr kirkjugarðasjóði


LANDMÆLINGAR ÍSLANDS
Landmælingar Íslands starfa á grundvelli laga um landmælingar og kortagerð.
Hlutverk verðandi byggingarmál: Skráir og miðlar upplýsingum um landfræðileg gagnasöfn af Íslandi. Sér um landfræðilegar og staðfræðilegar mælingar. Leggur út hnitakerfi landsins og viðheldur grunn-upplýsingum um það, vinnur úr og miðlar gögnum á sviði loft- og gervitunglamynda, gefur út kort af landinu í prentuðu og stafrænu formi og kortleggur og miðlar upplýsingum um örnefni í samráði við Örnefnastofnun Íslands.
Þjónusta / upplýsingar:
- Upplýsingar um og sala á kortum og loftmyndum
- Hnitaskrá, stafrænn kortagrunnur, lýsigagnavefur, örnefnagagnagrunnur, LU-flokkun (fitjuskrá fyrir landfræðileg gögn)
- Tölulegar upplýsingar um Ísland (stærð, mannfjöldi, vegalengdir o. fl.)
- Upplýsingar um landshnitakerfið ÍSN93 (og viðmiðun), grunnstöðvanet og mælistöðvar til notkunar við landmælingar og kortagerð


Neytendastofa
Neytendastofa er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir viðskiptaráðuneytið og starfar samkvæmt lögum nr. 62/2005 um Neytendastofu og talsmann neytenda.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Annast rafmagnsöryggismál, skráir og rannsakar slys og tjón af völdum rafmagns og gefur út reglur, kynningar- og fræðsluefni er varðar rafmagnsöryggi. Löggildir rafverktaka.
Þjónusta / upplýsingar:
- Upplýsingar um löggilta rafverktaka
- Leiðbeiningablöð t.d. um fjarlægð mannvirkja frá raflínum
- Kvörðunarþjónusta, upplýsingar um mælitæki


RANNSÓKNASTOFNUN BYGGINGARIÐNAÐARINS
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins starfar á grundvelli laga um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
Hlutverk varðandi byggingarmál:
Sinnir efnisrannsóknum og ýmis konar rannsóknarverkefnum, gefur tæknilegar umsagnir og vottar byggingarefni, hluta- og heilar byggingar. Annast eftirlit með framleiðendum byggingarefna og byggingar-hluta, sbr. ákvæði í byggingarreglugerð. Veitir rannsóknarþjónustu við hönnun og byggingu mannvirkja, vöruþróun, varðveitir upplýsingar um íslenskan byggingariðnað, stundar sjálfstæðar rannsóknir í byggingartækni. Fylgist með nýjungum í byggingaiðnaði, lagar þær að íslenskum staðháttum og skilgreinir gæðakröfur fyrir mannvirki á Íslandi. Stofnunin starfar í eftirtöldum deildum: steinsteypudeild, vegtækni-deild, húsbyggingartæknideild, jarðfræði- og jarðtæknideild, lagnadeild, útgáfudeild og rannsóknastofa.
Þjónusta / upplýsingar:
- Handbók byggingariðnaðarins (www.habygg.is)
- Upplýsingabanki: Skýrslur, sérrit, Rb.tækniblöð og verklýsingar
- Leiðbeiningar varðandi vottun byggingarvöru, eininga eða einingahúsa
- Ráðgjöf og umsagnir um þekkingarsvið stofnunarinnar. Námskeið og ráðstefnur
- Staðlaðar verklýsingar: Tréverk, yfirborðsefni og steinsteypa
- Upplýsingar / vottun á byggingarvörutegundum
- Upplýsingar um kostnað á einstökum þáttum við mannvirkjagerð og um vinnusparandi byggingaraðferðir
- Upplýsingar um byggingafræðileg efni
- Úttekir m.a. á þjöppun jarðvegsfyllinga undir hús


SIGLINGASTOFNUN
Siglingastofnun starfar á grundvelli laga um Siglingastofnun Íslands.
Hlutverk varðandi byggingamál: Umsagnir um hættu af sjávarflóðum, áætlanagerð og umsjón með hafnarframkvæmdum, sjóvörnum og lendingarbótum. Annast framkvæmd laga um vitamál.
Þjónusta / upplýsingar:
- Hættusvæði vegna sjávarflóða
- Umsjón með sjóvörnum og lendingarbótum


SKIPULAGS-, BYGGINGAR- OG UMHVERFISNEFND VARNARSVÆÐA
sjá Utanríkisráðuneytið
Skipulags- byggingar- og umhverfisnefnd varnarsvæða starfar undir yfirstjórn utanríkisráðherra á grundvelli skipulags- og byggingarlaga og reglugerðar nr. 471/1999 um skipulags-, byggingar- og umhverfismál á varnarsvæðum.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Að móta stefnu um ráðstöfun og skipulagningu lands á varnarsvæðum og fjalla um byggingarleyfisumsóknir og umhverfismál, en þar gilda íslenskar reglur nema þegar bandarískar reglur ganga lengra s.s. vegna brunamála og umhverfismála.
Þjónusta / upplýsingar:
- Byggingar og framkvæmdaleyfi
- Upplýsingar um hvaða reglur gilda varðandi byggingar- og umhverfismál


SKIPULAGSSTOFNUN
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulags- og byggingarlaga og laga um mat á umhverfisáhrifum.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Ráðgjöf og upplýsingar um byggingarmál, einkum varðandi túlkun byggingarreglugerðar. Umsagnir um ágreiningsmál á sviði byggingarmála. Stuðlar að rannsóknum á sviði byggingarmála og útgáfu upplýsinga um þau mál. Veitir upplýsingar um ferlimál fatlaðra. Afgreiðir umsóknir sveitarstjórna um meðmæli með stökum framkvæmdum þar sem ekki liggur fyrir skipulag.
Þjónusta / upplýsingar:
- Leiðbeiningablöð varðandi byggingar- og skipulagsmál
- Yfirlit og upplýsingar um skipulagsáætlanir á landinu öllu
- Leiðbeiningar/umsagnir um byggingarmál
- Umsagnir vegna kærumála hjá úrskurðarnefnd Skipulags- og byggingarmála
- Úrskurðir um mat á umhverfisáhrifum og ákvarðanir um matsskyldu
- Listi yfir skipulagsfulltrúa sveitarfélaga


STAÐLARÁÐ ÍSLANDS
Staðlaráð Íslands starfar á grundvelli laga um stöðlun:
Hlutverk varðandi byggingarmál: Umsjón með staðlagerð á Íslandi og aðlögun erlendra staðla og útgáfu þeirra. Stendur fyrir námskeiðum og veitir upplýsingar og þjónustu um allt sem varðar staðla,og er vettvangur hagsmunaaðila til að vinna að stöðlun og notkun staðla á Íslandi. Sér um alþjóðlegt samstarf. Selur staðla frá staðlasamtökum. Á vegum staðlaráðs starfa þrjú fagráð: Byggingastaðlaráð, rafstaðlaráð og fagráð í upplýsingatækni.
Þjónusta / upplýsingar:
- Sala staðla
- Námskeið um staðla og staðlamál
- Aðgangur að erlendum stöðlum á frummáli og á íslensku e.atv.
- Staðlamál, fréttabréf
- Staðlatíðindi, auglýsingar um nýja staðla, niðurfellingar og frumvörp að stöðlum
- Staðlavaktin, þjónusta, uppfærsla nýjustu gildandi staðla


SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Samband íslenskra sveitarfélaga veitir upplýsingar um ýmislegt tengt sveitarfélögum og stjórnkerfi þeirra auk þess að vinna að hvers konar hagsmunamálum þeirra.
Þjónusta / upplýsingar:
- Tenging við heimasíður sveitarfélaga
- Uplýsingar um sveitarfélög
- Sveitarfélagakort
- Breytingar á sveitarfélagaskipan


SVEITARFÉLÖG
sjá Samband íslenskra sveitarfélaga
Sveitarstjórnir starfar á grundvelli sveitarstjórnarlaga.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Bera ábyrgð á gerð skipulagsáætlana í sveitarfélaginu, áætla þörf fyrir íbúðarhúsnæði, veita byggingar- og framkvæmdaleyfi, hafa eftirlit með framkvæmdum o.fl.
Byggingarnefnd (byggingar- og skipulagsnefnd) afgreiðir byggingarleyfisumsóknir til sveitarstjórnar að fenginni umsögn byggingarfulltrúa, framkvæmdastjóra nefndarinnar. Byggingarleyfisumsóknir geta einnig þurft afgreiðslu annara nefnda s.s. ferlinefndar eða heilbrigðisnefndar. Þegar sveitarstjórn hefur samþykkt afgreiðslu byggingarnefndar gefur byggingarfulltrúi ( skipulags- og byggingarfulltrúi) út byggingarleyfi, og ákveður hvaða hönnunargögn skuli leggja fram til viðbótar, yfirfer þau, annast úttektir og eftirlit og gefur út vottorð þar um í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar.
Starfsmenn sveitarfélaga veita upplýsingar um veitur, gatnagerð o.fl. varðandi byggingarframkvæmdir, og reka stærri sveitarfélög tæknideildir sem sjá um þessi mál. Eldvarnaeftirlit hefur eftirlit með því að nýbyggingar fullnægi kröfum um brunavarnir, tekur út mannvirki í notkun og gerir kröfur um úrbætur á brunavörnum. Heilbrigðiseftirlit fylgir eftir og veitir umsagnir um húsnæði fyrirtækja, stofnanna og íbúðarhúsnæðis m.t.t. hollustuhátta, veitir starfsleyfi, hefur eftirlit með mengun s.s. hljóð- og efnamengun og veitir umsagnir og ráðgjöf um mengunarvarnir t.d varðandi fráveitumál. Húsnæðisnefnd aðstoðar einstaklinga sem búa við erfiðar aðstæður við öflun íbúðarhúsnæðis (lánveitingar, leiguhúsnæði), sér um greiðslu húsaleigubóta o.fl.
Þjónusta / upplýsingar:
- Upplýsingar um skipulagsáætlanir í sveitarfélaginu og skipulagsskilmála einstakra svæða
- Lóðaumsóknir, lóðasamningar
- Upplýsingar um gjöld, s.s. byggingarleyfisgjöld, lóðagjöld og fasteignagjöld
- Byggingar- og framkvæmdaleyfi
- Hönnunargögn, s.s. mæli- og hæðablöð
- Aðaluppdrættir og önnur hönnunargögn einstakra mannvirkja
- Byggingareftirlit
- Upplýsingar um og skráning á hönnuðum, byggingarstjórum og iðnmeisturum
- Upplýsingar um veitur; hitaveitu, vatnsveitu, rafveitu, fjarskiptamál
- Upplýsingar um gatnagerð og sorphirðu
- Umsagnir og ráðgjöf varðandi varðandi byggingarmál, öryggismál, mengunarmál og heilbrigðismál
- Viðbótarlán / leiguhúsnæði
- Húsaleigubætur


UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
Umhverfisráðuneytið hefur yfirumsjón með skipulags- og bygginarmálum í landinu.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Undirbýr og gerir tillögur til frumvarpa á Alþingi um skipulags- og byggingarlög og lög um mat á umhverfisáhrifum og breytingum á þeim. Sér um gerð og breytingar á skipulagsreglugerð og byggingareglugerð. Staðfestir svæðis- og aðalskipulag. Veitir undanþágu frá ákvæðum byggingarreglugerðar og skipulagsreglugerðar. Sér um löggildingu mannvirkjahönnuða og iðnmeistara í byggingarfögum að undanskildum rafvirkjum.
Þjónusta / upplýsingar:
- Skipulags- og byggingarlög, lög um mat á umhverfisáhrifum
- Reglugerðir um byggingar- og skipulagsmál
- Löggildingar mannvirkjahönnuða og iðnmeistara
- Rit um fjölmörg efni, m.a. varðandi sjálfbæra þróun, stefnumótun og áætlanir


UMHVERFISSTOFNUN
Umhverfisstofnun starfar á grundvelli laga um Umhverfisstofnun.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Samræmir heilbrigðiseftirlit í landinu, er til ráðgjafar fyrir heilbrigðisnefndir, hefur eftirlit með mengandi starfsemi, hefur umsjón með gerð verndaráætlana fyrir náttúruverndarsvæði og skráningu náttúruminja, og veitir umsagnir um skipulag og framkvæmdir á svæðum á náttúruminjaskrá, friðlýstum svæðum og svæðum sem njóta verndar skv. 37. gr. laga um náttúrurvernd.
Þjónusta / upplýsingar:
- Upplýsingar um friðlýst svæði
- Náttúruminjaskrá
- Upplýsingar um vatnsverndarsvæði
- Leiðbeiningar um rotþrær og siturlagnir
- Umsagnir um skipulag og framkvæmdir á svæðum á náttúruminjaskrá, friðlýstum svæðum og svæðum sem njóta verndar skv. 37. gr. laga um náttúrurvernd
- Upplýsingar um flokkun strandsvæða
- Leiðbeiningar um val og hönnun minni vatnsveitna


ÚRSKURÐARNEFND SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁLA
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála starfar á grundvelli skipulags- og byggingarlaga.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Kveður upp úrskurði í ágreiningsmálum um skipulags- og byggingar-mál. Telji einhver rétti sínum hallað með samþykkt byggingarnefndar eða sveitarstjórnar er honum heimilt, innan mánaðar frá því að honum varð kunnugt um afgreiðslu sveitarstjórnar, að skjóta málinu til nefndarinnar með skriflegri kæru.
Þjónusta / upplýsingar:
- Úrskurðir kærumála


VEÐURSTOFA ÍSLANDS
Veðurstofa Íslands starfar á grundvelli laga um Veðurstofu Íslands.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Annast mælingar og rannsóknir varðandi ofanflóðahættu og gerð hættumats. Einnig gerð bráðabirgðahættumats að beiðni Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga vegna skipulags eða veitingar byggingarleyfa á svæðum þar sem ofanflóð eru hugsanleg en hættumat liggur ekki fyrir. Vaktar og gefur út viðvaranir vegna veðurs, eldgosa, jarðskjálfta, snjóflóða / aurskriðna og hruns þegar hætta er á skaða á fólki eða mannvirkjum. Hefur almennt ráðgjafar- og eftirlitshlutverk í ofanflóðamálum og er stjórnvöldum til ráðuneytis um snjótæknilega atriði er varða tilhögun mannvirkja á hættusvæðum. Vinnur að og veitir umsagnir um vindstaðla bygginga og ísingarstaðla- og krafna.
Þjónusta / upplýsingar:
- Skýrslur og aðrar upplýsingar um hættumat fyrir helstu þéttbýlisstaði landsins sem búa við snjóflóðahættu
- Gerð bráðabirgðahættumats
- Rýmingaráætlanir og rýmingarkort
- Annálar og aðrar upplýsingar snjóflóð og skriðuföll
- Upplýsingar um jarðskjálfta, eldgos og öskufall
- Ráðgjöf um varnarvirki gegn ofanflóðum og snjótæknileg atriði varðandi mannvirki á hættusvæðum
- Skýrslur og gögn um veðurfar landsins


VEGAGERÐIN
Vegagerðin starfar á grundvelli vegalaga.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu, sem miði að greiðri og öruggri umferð. Samráð skal haft við Vegagerðina um val á legu þjóðvega og tengingar við þá og um framkvæmdir á veghelgunarsvæðum.
Þjónusta / upplýsingar:
- Upplýsingar um þjóðvegakerfið
- Upplýsingar um helgunarsvæði þjóðvega
- Leyfisveitingar og umsagnir varðandi tengingar við þjóðvegi og framkvæmdir á helgunarsvæðum vega


VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Vinnueftirlit ríksins starfar á grundvelli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Hlutverk varðandi byggingarmál: Umsagnir um teikningar að nýju og breyttu atvinnuhúsnæði. Gefur út reglur og leiðbeiningar um öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir byggingarvinnustaði og sér um námskeið og ráðgjöf um ýmislegt varðandi vinnuvernd.
Þjónusta / upplýsingar:
- Öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir byggingarvinnustaði Evrópskt eftirlitsátak í byggingariðnaði, bæklingur
- Leiðbeiningar / ráðgjöf um starfsmannaaðstöðu, vinnuvernd o.fl.
- Rannsóknarniðurstöður um ýmislegt tengt vinnuvernd
- Úttektir og eftirlit m.a. varðandi mengun og aðbúnað á vinnustöðum

 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is