Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
SVÆÐISSKIPULAG
Ef tvö eða fleiri sveitarfélög telja þörf á að samræma og setja fram sameiginlega stefnu varðandi tiltekna þætti landnotkunar og þróunar byggðar geta þau unnið svæðisskipulag. Stefna svæðisskipulags skal taka til minnst 12 ára meira ...

Svæðisskipulag á miðhálendinu
Á miðhálendinu fer samvinnunefnd miðhálendis með gerð svæðisskipulags. Samvinnunefnd miðhálendis er skipuð af umhverfisráðherra eftir sveitarstjórnarkosningar. Á miðhálendinu er í gildi svæðisskipulag miðhálendis sem staðfest var 1999 með áorðnum breytingum. Nánari upplýsingar um svæðisskipulag miðhálendis og störf samvinnunefndar miðhálendis má finna á heimasíðu nefndarinnar.

Sérstakt svæðisskipulag (sbr. 15. gr. skipulags- og byggingarlaga)
Í 15. gr. skipulags- og byggingarlaga er gert ráð fyrir að tilteknar framkvæmdir og áætlanir geti fengið svokallaða sérstaka svæðisskipulagsmeðferð. meira ...

Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi svæðisskipulag
Skipulagsstofnun leiðbeinir sveitarfélögum og aðstoðar við svæðisskipulagsgerð, allt frá því ákvörðun um að hefja svæðisskipulagsgerð er tekin og þar til endanlegt svæðisskipulag er endanlega afgreitt. Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi svæðisskipulagsgerð sveitarfélaga felst fyrst og fremst í
- Leiðbeiningum, þróun og eftirliti
- Þátttöku í kostnaði sveitarfélaga við gerð svæðisskipulags (framlag úr Skipulagssjóði)
- Vinna með starfandi samvinnunefndum um gerð svæðisskipulags
- Umsögnum til samvinnunefnda um svæðisskipulagstillögur á vinnslustigi
- Umsögn til samvinnunefndar um tillögu að svæðisskipulagi miðhálendis og breytingar á því fyrir auglýsingu
- Auglýsir tillögur að sérstöku svæðisskipulagi og tekur afstöðu til framkominna athugasemda
- Umsögnum til umhverfisráðherra um samþykkt svæðisskipulag fyrir staðfestingu

Leiðbeiningar um svæðisskipulag
Skipulagsstofnun hefur gefið út ýmis leiðbeiningablöð tengd svæðisskipulagi. Einnig er rétt að benda á leiðbeiningarit um gerð aðalskipulags, en það má hafa til hliðsjónar við gerð svæðisskipulags.





 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is