Hafiđ samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarađ

 
Skipulagsáriđ 2008
Á árinu 2008 eru tímamót í sögu Skipulagsstofnunar ađ ýmsu tilefni. Međ breytingu á skipulagslögum áriđ 1938 var skipulagsnefndinni, sem fram ađ ţeim tíma hafđi sjálf unniđ ađ skipulagsgerđ, veitt heimild til ađ ráđa “húsameistara og ráđunaut í heilbrigđismálum sér til ađstođar.” Ráđning Harđar Bjarnasonar, arkitekts til skipulagsnefndarinnar áriđ 1938 markar upphaf ţeirrar stofnunar sem síđar varđ embćtti skipulagsstjóra ríkisins og Skipulagsstofnun áriđ 1998. Ţannig eru á árinu 2008 70 ár frá ţví komiđ var á fót forvera Skipulagstofnunar. Á ţví ári verđa einnig 10 ár frá gildistöku skipulags- og byggingarlaganna og 15 ár frá ţví fyrstu lög um mat á umhverfisáhrifum voru sett hér á landi.

Skipulagsstofnun hefur ákveđiđ ađ nota ţessi tímamót til ađ vekja athygli á nokkrum viđfangsefnum stofnunarinnar og stuđla ţannig ađ aukinni umrćđu um skipulags-, umhverfis- og byggingarmál. Ađ frátöldum júnímánuđi og júlí er stefnt ađ einhverjum atburđi í hverjum mánuđi. Í janúar verđa haldin námskeiđ í skipulagsgerđ og í febrúar verđur opnuđ ný heimasíđa, ný skipulagsvefsjá og haldiđ málţing um umhverfismat áćtlana. Í mars tekur Skipulagsstofnun ţátt í alţjóđlegri snjóflóđaráđstefnu á Egilsstöđum og í apríl verđur haldiđ málţing um landsskipulag. Í maí verđur árlegur samráđsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga og í ágúst verđur ársfundur norrćnna skipulagsyfirvalda á Höfn í Hornafirđi. Í september verđur haldiđ málţing um loftslagsbreytingar og skipulag og í október verđur málţing um mat á umhverfisáhrifum. Á alţjóđlega skipulagsdeginum 8. nóvember verđur haldiđ málţing um mótun byggđar og í desember verđur málţing ţar sem kynntar verđa niđurstöđur úr könnun Skipulagsstofnunar á stöđu byggingarmála og byggingareftirlits í landinu.

Skipulagsáriđ 2008 dagskrá

(innf. 18. janúar 2008)

Til baka













 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is