Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
NÁNAR UM SÉRSTAKT SVÆÐISSKIPULAG
Í 15. gr. skipulags- og byggingarlaga er gert ráð fyrir að tilteknar framkvæmdir og áætlanir geti fengið svokallaða sérstaka svæðisskipulagsmeðferð. Sérstök svæðisskipulagsmeðferð kallaðist áður landsskipulagsmeðferð í þeim frumvörpum sem Alþingi hafði til meðferðar áður en skipulags- og byggingarlög voru samþykkt. Sérstakri svæðisskipulagsmeðferð er unnt að beita vegna mannvirkja og áætlana sem ná til fleiri en eins sveitarfélags s.s. þjóðvega, orkumannvirkja eða fjarskiptalína og áætlana um framkvæmdir og aðra ráðstöfun lands til nýtingar eða verndar. Sérstök svæðisskipulagsmeðferð felst í því að forsvarsaðili viðkomandi framkvæmdar eða áætlunar óskar eftir því að Skipulagsstofnun auglýsi tillögu hans að sérstöka svæðisskipulagi og gefst þá íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að kynna sér tillöguna og koma á framfæri athugasemdum. Skipulagsstofnun tekur að athugasemdafresti liðnum afstöðu til athugasemda í samráði við forsvarsaðila tillögunnar og sendir hlutaðeigandi sveitarstjórnum tillögu sína að afgreiðslu málsins ásamt athugasemdum og umsögnum. Sveitarstjórnir eiga þá kost á að tjá sig um málið. Skipulagsstofnun afgreiðir síðan hið sérstaka svæðisskipulag til umhverfisráðherra. Sérstakt svæðisskipulag er háð staðfestingu umhverfisráðherra og tekur gildi þegar það hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Sérstakt svæðisskipulag sem hefur verið staðfest frá gildistöku skipulags- og byggingarlaga:
  • Sérstakt svæðisskipulag fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4, Fljótsdalur - Reyðarfjörður. Tillaga lögð fram af Landsvirkjun. Staðfest 2001.
  • Sérstakt svæðisskipulag fyrir ljósleiðara Vatnsfell - Akureyri. Tillaga lögð fram af Fjarska. Staðfest 2001.
  • Sérstakt svæðisskipulag fyrir Kárahnjúkavirkjun. Tillaga lögð fram af Landsvirkjun. Staðfest 2002.

    Einnig hefur verið í vinnslu sérstakt svæðisskipulag fyrir Norðurlandsskóga.

    til baka á landsskipulagssíðu
    til baka á svæðisskipulagssíðu

  •  
     
    Skipulagsstofnun
    Laugavegi 166
    150 Reykjavík
    sími: 595 4100
    fax: 595 4165
    tölvupóstur: skipulag@skipulag.is