Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað

 
Álver, virkjanir og háspennulínur - kynningarfundir í dag, mánudaginn 3. maí
Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra.

Opið hús, þar sem framkvæmdaraðilar munu kynna frummatsskýrslurnar, verður á eftirtöldum stöðum:

Í Ýdölum, Aðaldal, mánudaginn 3. maí frá kl. 15 til 18
Á Fosshótel Húsavík mánudaginn 3. maí frá kl. 20 til 23
Í Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit, þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16 til 19
Á hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19

Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en þær eru aðgengilegar til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Einnig er hægt að nálgast frummatsskýrslurnar og viðauka á heimasíðum Landsnets: www.landsnet.is, Landsvirkjunar: www.lv.is, Þeistareykja ehf.:www.theistareykir.is, Alcoa:www.alcoa.is og Mannvits: www.mannvit.is og heimasíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.

Athugasemdir við frummatsskýrslur skulu vera skriflegar. Þær má senda í tölvupósti á netfangið: skipulag@skipulag.is eða með símbréfi í númerið: 5954165 eða með hefðbundnum pósti til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 150 Reykjavík. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 14. júní 2010.

(innf. 3. maí 2010)

Til baka













 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is