| |
Urðunarstaður og efnistaka við Sölvabakka, Blönduósbæ
EFLA hf., f.h. Norðurár bs., hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um urðunarstað og efnistöku við Sölvabakka, Blönduósbæ. Frumatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 18. destember 2009 til 29. janúar 2010 á eftirtöldum stöðum: Á Héraðsbókasafni Austur-Húnavatnssýslu, bæjarskrifstofu Blönduósbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrsluna má einnig sjá hér.
Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. janúar 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Stefnt er að því að halda kynningarfund um framkvæmdina og umhverfisáhrif hennar í byrjun næsta árs. Tilkynnt verður um fundinn þegar nær dregur.
(innf. 17. desember 2009)
Til baka
|
|