Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað

 
Suðurlandsvegur, frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss í Hveragerði, Sveitarfélaginu Ölfus, Sveitarfélaginu Árborg og Flóahreppi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. desember 2009 til 29. janúar 2010 á Bókasafninu í Hveragerði og Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi. Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu: www.efla.is og Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is. Hér er tengill á frummatsskýrsluna.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. janúar 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Stefnt er að því að halda kynningarfund um framkvæmdina og umhverfisáhrif hennar í byrjun næsta árs. Tilkynnt verður um fundinn þegar nær dregur.

(innf. 10. desember 2009)

Til baka













 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is