Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
  Ákvörðun Skipulagsstofnunar um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína með öðrum framkvæmdum.
Skipulagsstofnun tók ákvörðun þann 25. mars 2009 um að Suðvesturlínur þyrftu ekki að fara í sameiginlegt mat með öðrum framkvæmdum. Ákvörðun stofnunarinnar er að finna í meðfylgjandi viðhengi.
S2008030095.pdf

Ákvörðun Skipulagsstofnunar var kærð til umhverfisráðuneytis. Ráðuneytið felldi í úrskurði sínum, dags. 29. september 2009, ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi og vísaði málinu á nýjan leik til stofnunarinnar. Úrskurð umhverfisráðuneytisins er að finna hér.

Á grundvelli úrskurðar umhverfisráðuneytisins sendi Skipulagsstofnun fyrirspurn til HS Orku hf. og Orkuveitu Reykjavíkur með beiðni um upplýsingar um hugsanlega virkjanakosti sem komi til með að nýta sér orkuflutning eftir fyrirhuguðum Suðvesturlínum. Fyrirspurn Skipulagsstofnunar til orkufyrirtækjanna dags. 1.10.2009 og svör Orkuveitu Reykjavíkur dags. 1.10.2009 og HS Orku hf. dags 5.10.2009 er að finna í meðfylgjandi viðhengi.
20091029141303090.pdf

Skipulagsstofnun sendi umsagnarbeiðnir til viðkomandi sveitarfélaga og annarra leyfisveitnenda dags. 6. október og til Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku hf. dags. 13. október 2009 um sameiginlegt mat Suðvesturlína með matsskyldum virkjunum sem orkufyrirtækin hafa vísað til. Umsagnarbeiðnir Skipulagsstofnunar er að finna í meðfylgjandi viðhengi.
20091029143139730.pdf

Umsagnir Orkuveitu Reykjavíkur, HS Orku hf., Landsnets, sveitarfélaga og annarra leyfisveitenda um sameginlegt mat Suðvesturlína og orkuvera er að finna í meðfylgjandi viðhengi.
20091029154646102.pdf

Skipulagsstofnun hefur að nýju tekið ákvörðun um að ekki þurfi að meta umhverfisáhrif Suðvesturlína með öðrum framkvæmdum. Ákvörðunina, dags. 30. október 2009, er að finna í meðfylgjandi viðhengi. Kærufrestur er til 4. desember 2009.
2009090058.pdf

Landsnet sendi bréf, sem barst 5. nóvember 2009, til Skipulagsstofnunar með leiðréttingu á fyrra bréfi þar sem misritað var afl orkuvera sem þarf til framleiðslu áls. Bréf Landsnets með leiðréttingunni er að finna í meðfylgjandi viðhengi. Þetta misræmi hafði birst á bls. 4 í ákvörðun Skipulagsstofnunar þar sem vísað var til umsagnar Landsnets. Þar kom fram að "Norðurál hefur hafið framkvæmdir við allt að 360.000 tonna álver í helguvík og er aflþörf þess alls 435 MW." Landsnet bendir á að hið rétta sé að Norðurál hafi hafið framkvæmdir við allt að 250.000 tonna álver í Helguvík og sé aflþörf þess alls 435 MW. Norðurál stefni að því að stækkun þess í 360.000 tonn og sé heildaraflþörf álvers að þeirri stærð 625 MW. Þar sem niðurstaða Skipulagsstofnunar byggði hvorki á stærð eða orkuþörf álvers í Helguvík, breyta þessar upplýsingar ekki ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009.
Leidretting fra Landsneti.pdf

 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is