| | LIÐNIR ATBURÐIR
SKIPULAGSÁRIÐ 2008
Skipulagsárið 2008 og heildardagskrá ársins
SAMRÁÐSFUNDUR SKIPULAGSSTOFNUNAR MEÐ SVEITARFÉLÖGUM 7. - 8. MAÍ
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar með sveitarfélögum var haldinn 7. – 8. maí nk. í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, Sunnubraut 36, Reykjanesbæ.
Glærukynningar af fundinum.
Farið yfir það helsta frá síðasta samráðsfundi Hafdís Hafliðadóttir, Skipulagsstofnun
Ábendingar Skipulagsstofnunar Málfríður K. Kristiansen, Skipulagsstofnun
Aðalskipulag í vinnslu - tillaga að aðalskipulagi Norðurþings 2009-2029 Matthildur Kr. Elmarsdóttir og Sigmar Metúsalemsson, Alta ehf
Nýlegir úrskurðir úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dómar og áhrif þeirra á skipulagsgerð Þorvaldur H. Þorsteinsson, Skipulagsstofnun:
Samráð um umfang og áherslur í umhverfismati skipulagsáætlana Birna B. Árnadóttir, Skipulagsstofnun
Mat á umhverfisáhrifum- og hvað svo? Sigmar A. Steingrímsson, Skipulagsstofnun
Landnotkun á landbúnaðarsvæðum Jón Geir Pétursson, umhverfisráðuneytið
Náttúruvá og kortlagning flóðasvæða Sigrún Karlsdóttir, Veðurstofa Íslands
Aðalskipulag í vinnslu - Nálgun, aðferðarfræði og umhverfismat - tillaga að aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024 Helga Bragadóttir, Kanon arkitektar og Smári Johnsen, VSÓ Ráðgjöf
Samþætting aðalskipulags og Staðardagskrár 21 fyrir Húnavatnshrepp, Blönduósbæ og Skagaströnd og úrdráttur á fyrirlestri Yngvi Þór Loftsson, Landmótun
AÐ MÓTA BYGGÐ - ráðstefnan
Þann 30. apríl s.l. var ráðstefna Skipulagsstofnunar AÐ MÓTA BYGGÐ ... með áherslu á lífsgæði haldin í Turninum í Kópavogi. Ráðstefnugestir voru um 190 talsins.
Ráðstefnan tókst í alla staði vel og virðist almenn ánægja ríkja með það sem fram kom í erindum og fyrirlestrum, sjá hér að neðan.
Hafdís Hafliðadóttir: Norræn samstarfsverkefni uml mótun byggðar og sjálfbæra þróun
Steffen Gulmann:City Design - Urban development for Citizens method
Astrid Lelarge:AL_An historical approach on the notion of esthetics and the town planning
Birgir Jóhannsson: BJ_II_An historical approach on the notion of esthetic and the town planning 67 mb
Háskólinn í Reykjavík: Samgöngustefna fyrir HR
Landbúnaðarháskóli Íslands: Að móta byggð til betri lífsgæða
Listaháskóli Íslands: Listaháskóli Íslands
Eric Holding: Where would we like to live?
Málfríður Kristiansen: Niðurstöður úr málstofunum
Samráðsaðilar Skipulagsstofnunar voru: Arkitektafélag Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Landbúnaðarháskóli Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsfræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.
AÐ MÓTA BYGGÐ - málstofur
4. desember 2008 stóð Skipulagsstofnun fyrir málþingi um byggingarmál.
Þingið var lokaþáttur afmælisdagskrár Skipulagsstofnunar en árið 2008 voru 70 ár liðin frá því að skipulagsnefnd ríkisins réð starfsmann til að annast skipulagsmál fyrir hönd nefndarinnar, 10 ár liðin frá gildistöku núgildandi skipulags- og byggingarlaga og 15 ár frá því fyrstu lög um mat á umhverfisáhrifum voru sett.
Á málþinginu var kynnt niðurstaða könnunar Skipulagsstofnunar á framkvæmd byggingareftirlits sveitarfélaga, auk þess sem að sjónarmið byggingarfulltrúa, aðalhönnuða og verktaka voru kynnt.
Hér að neðan má skoða skyggnur fyrirlesaranna:
Niðurstaða könnunar á meðal byggingarfulltrúa - Benedikt Jónsson
Reynsla byggingarfulltrúa - Magnús Sædal Svafarsson
Sjónarmið aðalhönnuðar - Albína Thordarson
Sjónarmið verktaka - Eyjólfur Bjarnason
Horft til framtíðar - Hafsteinn Pálsson
Föstudaginn 24. október 2008 stóð Skipulagsstofnun fyrir málþingi um mat á umhverfisáhrifum.
Hér að neðan má skoða skyggnur fyrirlesaranna.
Efni frá Rut Kristinsdóttur sviðsstjóra Skipulagsstofnun. Rut Kristinsdóttir skyggnur
Efni frá Birni Stefánssyni, framkvæmdastjóra Landsvirkjun Power. Björn Stefánsson skyggnur
Efni frá Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, sviðsstjóra Eflu. Helga Jóhanna Bjarnadóttir skyggnur
Efni frá Kristni Magnússyni, deildarstjóra Fornleifavernd ríkisins. Kristinn Magnússon skyggnur
Efni frá Árna Finnssyni, formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands. Árni Finnsson skyggnur
Efni frá Árna Sigfússyni, bæjarstjóra Reykjanesbæ. Árni Sigfússon skyggnur
Efni frá Óla Halldórssyni, forstöðumanni Þekkingarseturs Þingeyinga. Óli Halldórsson skyggnur
Efni frá Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Stofnun Sæmundar fróða. Guðmundur Ingi Guðbrandsson skyggnur
Fimmtudaginn 25. september 2008 stóð Skipulagsstofnun fyrir málþingi um skipulag og loftslagsbreytingar.
Hér að neðan má skoða skyggnur fyrirlesaranna.
Efni frá Halldóri Björnssyni formanni vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi.
Skyggnur Halldór Björnsson
Efni frá Þorsteini R. Hermannssyni, Mannviti verkfræðistofu. Áhrif skipulags á losun gróðurhúsalofttegunda frá umferð í þéttbýli.
Skyggnur Þorsteinn Hermansson
Efni frá Gísla Viggóssyni, forstöðumanni rannsókna og þróunar hjá Siglingastofnun. Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn sjávarflóðum.
Skyggnur Gísli Viggósson
Efni frá Ellý Katrínu Guðmundsdóttur, sviðsstýru umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Sveitarfélög og aðgerðir í loftlagsmálum.
Skyggnur Elly Katrín Guðmundsdóttir
Efni frá Carrie Smith, skipulagsfræðingi hjá Scottish Government. Planning and Climate Changes in Scotland.
Skyggnur Carrie Smith
Efni frá Hafdísi Hafliðadóttur, sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs á Skipulagsstofnun. "Fremtidens Nordiska Stad" – Norrænt samstarfsverkefni.
Skyggnur Hafdís Haflíðadóttir
Samráðsfundur Skipulagsstofnunarog sveitarfélaga var haldinn 8. - 9. maí í Hafnarfirði
Dagskrá
Fimmtudagur 8. maí
12:00 Afhending gagna
12.30 Fundur settur – Stefán Thors skipulagsstjóri ríkisins
12.35 Ábendingar Skipulagsstofnunar til sveitarfélaga - Málfríður K. Kristiansen, Skipulagsstofnun
Leiðbeiningarrit um skógrækt og skipulag - Ólafur Melsted, Skipulagsstofnun
Smávirkjanir og framkvæmdaleyfi - nýjar leiðbeiningar – Sigurður Ásbjörnsson, Skipulagsstofnun
Úrskurðir úrskurðarnefndar frá síðasta samráðsfundi og áhrif þeirra - Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson, Skipulagsstofnun
13.45 Frumvarp til skipulagslaga - Helstu nýmæli og breytingar - Stefán Thors skipulagsstjóri ríkisins
Sýn Reykjavíkurborgar á nýmæli og breytingar – Helga B. Laxdal, Reykjavíkurborg
14:30 Kaffi
15:00 Náttúruvá og skipulag
Ákvæði skipulags- og byggingarlaga um náttúruvá - vinna stýrihóps ríkisins um kortlagningu flóða - Ólafur Melsted, Skipulagsstofnun
Flóð í uppsveitum Árnessýslu og áhrif þeirra á skipulag - Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsstjóri uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Skógrækt, frístundasvæði og eldhætta – Hulda Guðmundsdóttir, skógræktarbóndi
Forvarnir og viðbrögð við gróðureldum - Björn Karlsson, brunamálastjóri
16:20 Fundarlok fyrri dags
Kvölddagskrá
16:45 Móttaka í boði Hafnarfjarðarbæjar í Pakkhúsinu - Björn Pétursson, bæjarminjavörður Hafnarfjarðarbæjar
Hreyfum skankana - stutt gönguferð með Birni um sögulegan miðbæ Hafnarfjarðar sem endar á Fjörukránni.
18:45 Kvöldverður á Fjörukránni (kvöldverður greiðist af hverjum þátttakenda)
Kynning á skipulagsmálum Hafnarfjarðarbæjar - Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar. Skemmtiatriði þar sem þekktir skemmtikraftar taka púlsinn á samtímanum með gleði fyrri daga.
Föstudagur 9. maí
9.00 Opnun Skipulagsvefsjár Skipulagsstofnunar – Gagn og gagnaskil - Ingimundur Stefánsson, Skipulagsstofnun
Samþætt áætlanagerð – Verkfæri við skipulagsgerð og tilvikskannanir á verkefnavefn (www.spatialnorth.org) - Ingimundur Stefánsson, Skipulagsstofnun
9:20 Skipulag og framkvæmdir á vegum einkaaðila – hvaða lærdóm má draga af reynslu sveitarfélaga. Skipulag og framkvæmdir einkaaðila - Reynsla Sveitarfélagisins Árborgar - Ásta Stefánsdóttir, Sveitarfélagið Árborg
Samvinna við landeigendur um skipulag og uppbyggingu í Mosfellsbæ - Finnur Birgisson, Mosfellsbæ
10:00 Kaffi
10:15 Aðalskipulag er fyrir allt land sveitarfélags - Ólafur Brynjar Halldórsson, Skipulagsstofnun
10:45 Umhverfismat áætlana – Málsmeðferð og kynning - Birna Björk Árnadóttir, Skipulagsstofnun
11:15 Umræður
12:00 Fundarslit
Námskeið um skipulagsgerð sveitarfélaga voru haldin í janúar, febrúar og það síðasta 17.-18. apríl í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, 4. hæð Reykjavík
Farið var í efni og framsetningu aðal- og deiliskipulagsáætlana og hvernig umhverfismat áætlana fléttast inn í skipulagsvinnuna. Námskeiðið var fyrst og fremst ætlað starfsmönnum og ráðgjöfum sveitarfélaga í skipulagsmálum en fulltrúar í skipulags- og byggingarnefndum og aðrir kjörnir fulltrúar voru velkomnir.
Dagskrá
Fimmtudaginn 17. apríl kl. 13.00 - 17.00
Farið verður yfir efni og framsetningu aðalskipulagsáætlana Sjá glærur
Umsjón: Birna Björk Árnadóttir og Guðrún Halla Gunnarsdóttir
Föstudaginn 18. apríl kl. 08.15 - 12.00
Farið verður yfir efni og framsetningu deiliskipulagsáætlana Sjá glærur
Umsjón: Málfríður K. Kristiansen
Námskeiðsgjald er kr. 10.000 fyrir báða dagana.
Málþing um landsskipulag var haldið í Salnum, Kópavogi fimmtudaginn 10. apríl kl. 14.00 - 18.00
Í fyrirliggjandi frumvarpi til skipulagslaga er ákvæði um gerð landsskipulagsáætlunar þar sem mörkuð er stefna stjórnvalda í skipulagsmálum sem varða almannahagsmuni.
Til umfjöllunar á málþinginu var hvað slík áætlun getur falið í sér auk þess sem kynnt verður staða landsskipulags í nágrannalöndunum. Jim Mackinnon, skipulagsstjóri Skotlands, kynnti nýja landsskipulagsáætlun fyrir Skotland.
Guðjón Bragason lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga kom í stað Halldórs Halldórssonar formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var veðurtepptur á Ísafirði. Umfjöllun Guðjóns snéri að mestu leiti að ályktun landsfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til skipulagslaga en fram kom ákveðin andstaða landsþingsins við landsskipulag eins og það er sett fram í frumvarpinu. Ályktunina má nálgast hér: http://www.samband.is/files/597319256%C3%81lyktun%20um%20skipulagsm%C3%A1l.pdf
Dagskrá málþingsins
14:00 Ávarp Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra
14:10 National Planning Framework 2 - Jim MacKinnon, Scottish Government
15:00 Landsskipulag - ný sýn í skipulagsmálum - Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu
15:20 Kaffi
15:40 Landsskipulag – Hvað breytist? Guðjón Bragason, Sambands íslenskra sveitarfélaga
16:10 Landsskipulag – lýðræði og sjálfbærni - Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
16:50 Pallborðsumræður
18:00 Málþingi lýkur
Fundarstjóri: Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins
Málþing um umhverfismat áætlana á Radisson SAS Hótel Sögu Reykjavík fimmtudaginn 28. febrúar 2008 kl. 09:30 -12:00
Lög um umhverfismat áætlana tóku gildi um mitt ár 2006 og er markmið laganna að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðla að sjálfbærri þróun. Umhverfismat áætlana felur í sér mat á umhverfisáhrifum áætlunar samhliða stefnumörkun ásamt gerð umhverfisskýrslu þar sem gerð er grein fyrir matinu og niðurstöðum þess. Frá því að lögin tóku gildi hefur Skipulagsstofnun borist nokkur fjöldi skipulagsáætlana sem falla undir lögin. Með hliðsjón af þeim skipulagsáætlunum og umhverfisskýrslum má álykta að nokkuð vanti upp á að skipulagsvinnan sé unnin með markmið laganna að leiðarljósi. Því telur Skipulagsstofnun tilefni til að boða til málþings og ræða umhverfismat áætlana og þá reynslu sem ólíkir þátttakendur hafa af umhverfismati áætlana til þessa og væntingar.
Framsögumenn:
Bergljót Einarsdóttir og Haraldur Sigurðsson frá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar
Sigurrós Friðriksdóttir frá Umhverfisstofnun,
Árni Ólafsson frá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga
Bergur Sigurðsson frá Landvernd og
Hafdís Hafliðadóttir sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Skipulagsstofnunar
Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga
Var haldinn dagana 12. og 13. apríl á Akureyri. Fyrri daginn fór fulltrúar Skipulagsstofnunar yfir þau málefni sem þeir töldu mikilvægt að koma á framfæri til sveitarfélaganna og seinni daginn komu fulltrúar sveitarfélaganna sínum viðfangsefnum á framfæri. Fundurinn tókst í alla staði vel og munu framsögur frummælenda verða settar hér á heimasíðuna.
Dagskráin var eftirfarandi: Dagskrá Skipulagsdaga 2007
Framsögur fulltrúa Skipulagsstofnunar og fulltrúa sveitarfélaganna má nálgast hér
 | MÁLÞING UM SPATIALNORTH -
Samþætting áætlana á norðurslóðum á Grand hótel, Reykjavík 31.okt – 1 nóv. n.k. | |
SpatialNorth (Spatial Planning and Development in Northern Peripheral Regions) er fjölþjóðlegt Norðurslóðaverkefni (NPP) sem lýtur að samþættingu áætlana fyrir stór svæði og að skapa alþjóðlegum samþykktum og samningum farveg inn í áætlanir. Skipulagsstofnun og Byggðastofnun hafa valið Austurland sem hinn íslenska vettvang til að greina forsendur fyrir mögulega samþættingu þróunar- og landnotkunaráætlana. Málþingið fer fram á ensku, skráning fer fram á www.spatialnorth.eu
Umhverfismat áætlana - ný lög nr. 105/2006
Tekið hafa gildi lög um umhverfismat áætlana sem varða skipulagsáætlanir sveitarfélaga og áætlanir stjórnvalda í einstökum málaflokkum, s.s. um samgöngur og orkumannvirki. Lögin verða kynnt á opnum fundum í október ásamt breytingum á lögum vegna efnistöku í eldri námum. Fulltrúar Skipulagsstofnunar og umhverfisráðuneytisins munu svara fyrirspurnum að kynningu lokinni.
Kynningarfundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
- Selfossi, á Þjónustuskrifstofu verkalýðsfélaganna, Austurvegi 56, 3. hæð, mánudaginn 9. október kl. 14
- Borgarnesi, á Hótel Hamri, fimmtudaginn 12. október kl. 14
- Ísafirði, á Þróunarsetri Vestfjarða, Árnagötu 2-4, mánudaginn 16. október kl. 14
- Kópavogi, í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, fimmtudaginn 19. október kl. 14
- Akureyri, á Hótel KEA, mánudaginn 23. október kl. 14
- Höfn á Hornarfirði, í Nýheimum, fimmtudaginn 26. októberk l. 14
- Egilsstöðum, á Hótel Héraði, mánudaginn 30 október kl. 14
Allir sem áhuga hafa á að kynna sér þessi mál og taka þátt í umræðum eru hvattir til að mæta
Sjá nánar: Lög um umhverfismat áætlana
Skipulagsdagur 2005
Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga um skipulagsmál var haldinn mánudaginn 31. október 2005 (kl. 10-16) á Hótel Sögu í Reykjavík. Markmið fundarins var að ræða samskipti og verkaskiptingu sveitarfélaga og Skipulagsstofnunar í tengslum við framkvæmd skipulags- og byggingarlaga, bæði við skipulagsfulltrúa og pólitíska fulltrúa sveitastjórnar í skipulagsmálum. Skipulagsstofnun sér þessa málstofu sem fyrsta árlega fund þessara aðila, þar sem til umræðu yrði framkvæmd skipulags- og byggingarlaga með sérstakri áherslu á eitt tiltekið þema hverju sinni. Sjá meira.
Mat á umhverfisáhrifum - ný lög
Kynningarfundir Skipulagsstofnunar í september
Í seinnihluta september nk. mun Skipulagsstofnun efna til kynningarfunda þar sem fulltrúar stofnunarinnar kynna ný lög er varða breytingar á lögum um mat á umhverfisáhrifum og skipulags- og byggingarlögum en þau munu taka gildi 1. október nk. Breytingarnar varða hagsmuni sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og almennings og verða fundirnir opnir öllum sem áhuga hafa á því að kynna sér þennan málaflokk. Að kynningu lokinni verða umræður og munu fulltrúar frá Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneytinu svara fyrirspurnum frá fundargestum.
Kynningarfundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
- Selfossi, á Hótel Selfossi, þriðjudaginn 13. september 2005, kl. 14
- Ísafirði, á Hótel Ísafirði, fimmtudaginn 15. september 2005, kl. 13
- Akureyri, á Hótel KEA, þriðjudaginn 20. september 2005, kl. 14
- Kópavogi, í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, fimmtudaginn 22. september 2005, kl. 14
- Egilsstöðum, á Hótel Héraði, mánudaginn 26. september 2005, kl. 14.
Allir sem áhuga hafa á að kynna sér þessi mál og taka þátt í umræðum um þau eru hvattir til að mæta.
Ráðstefna um skipulag lágsvæða, 28. apríl
Fimmtudaginn 28. apríl stendur umhverfis- og byggingarverkfræðiskor HÍ í samráði
við Skipulagsstofnun og Siglingastofnun fyrir ráðstefnu um skipulag lágsvæða.
Námskeið um skipulagsmál sveitarfélaga –
ábyrgð og hlutverk skipulagsnefndar og sveitarstjórnar
Verður haldið hjá Endurmenntun HÍ í samstarfi við Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg þann 14. apríl 2005.
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað fulltrúum í sveitarstjórnum og skipulagsnefndum en einnig skipulagsfulltrúum sveitarfélaga.
Námskeiðslýsing
Skipulagsáætlanir eru forsenda uppbyggingar og stærri framkvæmda. Skipulagsákvarðanir eru með mikilvægustu ákvörðunum sveitarstjórna, enda hafa þær áhrif á umhverfi og samfélag til framtíðar. Fulltrúar í sveitarstjórnum og skipulagsnefndum bera ábyrgð á skipulagi og hvernig landi er ráðstafað, bæði landi í eigu sveitarfélagsins og landi í einkaeign.
Þekking á tilgangi og gildi skipulags sem stjórntækis er mikilvæg svo tryggt sé að ráðstöfun lands sé með skynsamlegum og hagkvæmum hætti og að almannahagur sé hafður að leiðarljósi við gerð skipulags, ásamt því að skipulag sé afgreitt með lýðræðislegum hætti og í samræmi við stjórnsýslureglur.
Á námskeiðinu verður farið yfir tilgang skipulags og hlutverk þess sem stjórntækis í byggðaþróun, ábyrgð og hlutverk fulltrúa í sveitarstjórnum og skipulagsnefndum, stjórnsýslu skipulagsmála og fleiri atriði við gerð og framkvæmd skipulags, s.s. stefnumótun, samráð, samþykktarferli, forkaupsrétt, eignarnám og bætur vegna skipulagsákvörðunar.
Umsjón: Hafdís Hafliðadóttir, sérfræðingur á Skipulagsstofnun.
Fyrirlesarar koma frá Skipulagsstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg.
Tími: Fimmtudagur 14. apríl kl. 13:00 – 18:00
Verð: 19.500 kr.
Skráningarfrestur er til 1. apríl.
Skráning fer fram hjá Endurmenntun í síma 525 4444 eða á heimasíðu EHÍ:
http://www.endurmenntun.hi.is
Námskeið um skipulagsgerð sveitarfélaga – efni og framsetning skipulags
Verður haldið hjá Endurmenntun HÍ í samstarfi við Skipulagsstofnun, Samband
íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg föstudaginn 15. apríl 2005.
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað starfsfólki sveitarfélaga sem vinna að
skipulagsgerð og sjálfstætt starfandi skipulagsráðgjöfum.
Námskeiðslýsing:
Með skipulags- og byggingarlögum 1998 jukust kröfur um efni og framsetningu
skipulags, kynningu og samráð, verulega frá því sem áður hafði verið. Í
skipulagsáætlun er gerð grein fyrir markmiðum og ákvörðunum sveitarstjórnar um
þróun byggðar. Skipulagsáætlun, skýrt framsett, auðveldar sveitarstjórn umfjöllun um
byggingar- og framkvæmdaleyfi og stuðlar að jafnræði í ákvarðanatöku og
réttaröryggi. Skipulagsáætlun, samþykkt á grunni lýðræðislegrar umfjöllunar, er betur
til þess fallin að skapa sátt um framkvæmdir.
Góð þekking á kröfum sem gerðar eru til efnistaka og framsetningar skipulags,
lagarammanum og kynningu og samráði, stuðlar að betri og lýðræðislegri
vinnubrögðum og að skipulag nýtist betur sem það stjórntæki sem því er ætlað að
vera. Vönduð vinnubrögð leiða til betra skipulags og þar með betra umhverfis.
Á námskeiðinu verður farið yfir markmiðagerð, efnistök og framsetningu skipulags.
Farið verður yfir stefnumótun og áherslur á mismunandi skipulagsstigum,
verkaskiptingu stjórnvalda og skipulagsráðgjafa, rætt um hlutverk skipulags sem
stjórntækis, gerð skipulagsskilmála, umhverfismat skipulagsáætlana, kynningu og
samráð.
Umsjón: Hafdís Hafliðadóttir, sérfræðingur á Skipulagsstofnun.
Fyrirlesarar koma frá Skipulagsstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og
Reykjavíkurborg.
Tími: Föstudagur 15. apríl kl. 13:00 – 18:00
Verð: 19.500 kr.
Skráningarfrestur er til 8. apríl.
Skráning fer fram hjá Endurmenntun HÍ í síma 525 4444 eða á heimasíðu EHÍ:
http://www.endurmenntun.hi.is
| Skipulagsstjóri Skotlands í heimsókn
|
Skipulagsstjóri Skotlands, Jim Mackinnon verður staddur á Íslandi í byrjun apríl nk. og mun halda erindi á vegum Skipulagsstofnunar fimmtudaginn 7. apríl kl. 15:30 - 17:00 á Grand Hótel.
Jim er yfirmaður skipulags- og byggingarskrifstofu skosku heimastjórnarinnar (Scottish Executive) og mun í erindi sínu fjalla um hlutverk skipulagsskrifstofunnar í skipulagskerfinu í Skotlandi og um landsskipulagsstefnu fyrir Skotland (National Planning Framework for Scotland).
Skipulagsskrifstofa Skotlands sér um framkvæmd skosku skipulagslaganna og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsmál. Skrifstofan fer yfir og samþykkir aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaganna og eru leyfisveitingar í stórum og mikilvægum skipulagsmálum einnig í höndum skrifstofunnar.
Í könnun sem skoska skipulagsskrifstofan stóð fyrir árið 2000 kom í ljós að mikill áhugi var á og stuðningur við að mörkuð yrði á einn eða annan hátt landsskipulagsstefna þótt slíkt væri ekki bundið í skipulagslögum. Hafin var því vinna við mörkun landsskipulagsstefnu (National Planning Framework) árið 2002 og lauk þeirri vinnu eftir umfjöllun meðal sveitarstjórna og á skoska þinginu með útgáfu NPF árið 2004. Í landsskipulagsstefnunni er sett fram framtíðarsýn um þróun byggðar í Skotlandi til ársins 2025. Þar eru ekki settar fram bindandi ákvarðanir um landnotkun eða uppbyggingu heldur er litið á landsskipulagsstefnuna sem skipulagsskjal sem greinir stöðu og möguleika á framtíðarþróun í Skotlandi sem sveitarfélögin hafa til hliðsjónar við gerð sinna skipulagsáætlana. Skoska heimastjórnin lítur svo á að skipulagskerfið hafi mikilvægu hlutverki að gegna í aðgerðum til að bæta lífskjör og umhverfi í byggðum Skotlands og að mati Margaret Curran, sem var ráðherra skipulagsmála í Skotlandi þar til haustið 2004, á landsskipulagsstefnan að gegna lykilhlutverki í endurskoðun og nútímavæðingu skoska skipulagskerfisins. Landsskipulagsstefnuna á að endurskoða á fjögurra ára fresti og mun það væntanlega skýrast fljótlega hvort hert verður eða slakað á þeirri stefnu sem mörkuð er og hversu bundin sveitarfélögin verða af þeirri stefnu.
Jim Mackinnon lauk prófi í landafræði frá Strathclydeháskóla í Glasgow árið 1974 og prófi í skipulagsfræðum frá sama skóla árið 1977. Jim hefur verið yfirmaður skipulags- og byggingarskrifstofu skosku heimastjórnarinnar (Scottish Executive) frá árinu 2000.
Samráð við skipulag og mat á umhverfisáhrifum
Er samráð virkt? Er samráð að skila árangri? Hvernig getum við gert betur ?
Málþing haldið í Reykjavík 29. janúar 2005 á vegum Skipulagsstofnunar
- Dagskrá
- Glærur og útdrættir erinda, samantekt starfandi skipulagsstjóra
- Ávarp ráðherra
5. norræna umhverfismatsráðstefnan, PLANNING FOR SUSTAINABLE DEVELOPMENT - the practice and potential of environmental assessment
Haldin í Reykjavík 25.-26. ágúst 2003, á vegum Skipulagsstofnunar og Nordregio.
- Almennar upplýsingar
- Dagskrá
- Glærur og útdrættir erinda
- Ráðstefnurit gefið út af Nordregio 2004
Skipulagsþing 2002, Mótun umhverfis til framtíðar
Haldið í Reykjavík 8.-9. nóvember 2002, á vegum Skipulagsstofnunar.
- Dagskrá, útdrættir, glærur og erindi
The Role of EIA in the Planning and Decision Processes of Large Development Projects in the Nordic Countries
Málþing haldið í Reykjavík 18. september 2000, á vegum Nordregio og Skipulagsstofnunar.
- Almennar upplýsingar, dagskrá, erindi og glærur.
|
|