Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
Leiðbeiningar og útgáfa >> Leiðbeiningar um flokkun umhverfisþátta, viðmið, einkenni og vægi umhverfisáhrifa

LEIÐBEININGAR UM FLOKKUN UMHVERFISÞÁTTA, VIÐMIÐ, EINKENNI OG VÆGI UMHVERFISÁHRIFA

Miðað er við að leiðbeiningarnar nýtist bæði við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismat áætlana. Markmið leiðbeininganna er að stuðla að samræmingu umfjöllunar um umhverfisáhrif framkvæmda og áætlana m.t.t. þeirra umhverfisþátta sem fjallað er um, þeirra viðmiða sem matið miðar við og notkunar hugtaka er varða einkenni og vægi áhrifa. Leiðbeiningunum er beint að þeim aðilum sem koma að gerð mats á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismats áætlana, þ.e. framkvæmdaraðilum, stjórnvöldum sem bera ábyrgð á áætlana- og skipulagsgerð, ráðgjöfum, leyfisveitendum, umsagnaraðilum og almenningi. Þeir sem vinna með leiðbeiningarnar eru hvattir til að senda Skipulagsstofnun ábendingar um það sem betur mætti fara.

Leiðbeiningar
Leiðbeiningarnar skiptast í þrjá hluta undir heitinu flokkun umhverfisþátta, viðmið umhverfisáhrifa og einkenni og vægi umhverfisáhrifa.

Flokkun umhverfisþátta
Í þessum hluta leiðbeininganna er sett fram tillaga að flokkun þeirra umhverfisþátta sem hafa þarf til hliðsjónar við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismat áætlana.

Viðmið umhverfisáhrifa - Almennt
Við mat á áhrifum framkvæmdar eða áætlunar á umhverfið þarf að liggja fyrir við hvað er miðað varðandi umfang og alvarleika áhrifa. Hér er tekið saman yfirlit yfir viðmið/umhverfisverndarmarkmið sem leggja þarf til grundvallar mati á umhverfisáhrifum framkvæmdar eða áætlunar. Viðmiðin/umhverfisverndarmarkmiðin er að finna í stefnuskjölum og getur verið um að ræða t.d. staðla, viðmiðunarmörk í reglugerðum, lagaákvæði eða alþjóðasamninga. Yfirlitið er ekki tæmandi auk þess sem hafa þarf í huga að tiltekin viðmið geta breyst og önnur bæst við með tilkomu nýrra stefnuskjala (t.d. ný lög og reglugerðir). Líta má á yfirlitið sem einskonar viðmiðabanka sem verður stöðugt í vinnslu og nýjum viðmiðum bætt við eftir því sem þurfa þykir.
Viðmið-umhverfisverndarmarkmið2010.pdf


Einkenni og vægi umhverfisáhrifa
Þegar unnið er að lýsingu og mati á áhrifum tiltekinnar framkvæmdar eða áætlunar á umhverfið þarf að gera grein fyrir einkennum viðkomandi áhrifa s.s. hvort áhrifin eru jákvæð eða neikvæð, bein eða óbein, sammögnuð, varanleg eða tímabundin, afturkræf eða óafturkræf. Auk þess þarf að gera grein fyrir hvert er vægi áhrifanna s.s. hvort áhrifin eru verulega jákvæð, talsvert jákvæð, óveruleg, talsvert neikvæð eða verulega neikvæð á tiltekna umhverfisþætti. Í þessum hluta leiðbeininganna er sett fram tillaga að skilgreiningum á einkennum áhrifa auk skýringa á vægishugtökum sem styðjast má við við mat á áhrifum framkvæmdar eða áætlunar á einstaka umhverfisþætti.

Viðauki
Í þessum viðauka hafa verið sett fram dæmi um framsetningu mats á umhverfisáhrifum framkvæmdar í frummatsskýrslu.

Einnig er hægt að opna skjal sem inniheldur allar ofangreindar leiðbeiningar nema viðmiðin/umhverfisverndarmarkmiðin.


 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is