Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
Leiðbeiningar og útgáfa >> Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana

LEIÐBEININGAR UM UMHVERFISMAT ÁÆTLANA

Út eru komin drög að leiðbeiningum um umhverfismat áætlana, og má finna þau á vefsíðu Skipulagsstofnunar undir Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum áætlana. Leiðbeiningunum er ætlað að leiðbeina um framkvæmd laga um mata á umhverfisáhrifum áætlana nr.105/2006 sem samþykkt voru sumarið 2006.

Í umhverfismati áætlana felst mat á umhverfisáhrifum stefnu viðkomandi áætlunar. Matið er sett fram í umhverfisskýrslu, sem verður hluti af eða fylgiskjal viðkomandi áætlunar. Að matinu skal vinna í samráði við hagsmunaaðila og umhverfisskýrslan skal lögð fram til opinberrar kynningar. Umhverfismatið verður alfarið á ábyrgð þess aðila sem vinnur að viðkomandi áætlanagerð og skal fellt að gerð hennar en felur ekki í sér ný samþykktar- og afgreiðsluferli.

Í leiðbeiningum Skipulagsstofnunar er fjallað um flest það sem lýtur að umhversmati áætlana s.s. hvaða áætlanir eru háðar, hvernig standa skal að kynningu og samráði, gerð umhverfisskýrslu og áætlun um vöktun umhverfisáhrifa.

Alta ehf. vinnur leiðbeiningarnar í umsjón Skipulagsstofnunar.

Drögin má finna á Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum áætlana.

Í leiðbeiningariti Skipulagsstofnunar um gerð aðalskipulags eru einnig settar fram ítarlegar leiðbeiningar um umhverfismat aðalskipulagstillagna. Einnig eru komnar út Leiðbeiningar um flokkun umhverfisþátta, viðmið og vægi umhverfisáhrifa sem hafa má til hliðsjónar við gerð umhverfismats áætlana.

 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is