| | Hver ber ábyrgð á gerð umhverfismats áætlana ? |
| | Sá aðili sem ber ábyrgð á gerð áætlunar sem fellur undir lög um umhverfismat áætlana, ber einnig ábyrgð á gerð umhverfismatsins. Sem dæmi er það sveitarstjórn, og skipulagsnefnd sveitarfélags fyrir hennar hönd, sem ber ábyrgð á gerð umhverfismats aðalskipulags og á sama hátt er það samgönguráðuneyti, og eftir atvikum stofnanir ráðuneytisins, sem ber ábyrgð á gerð umhverfismats samgönguáætlunar. Þar sem matið er samtvinnað áætlana- og skipulagsgerðinni er það í höndum þeirra sem vinna áætlanirnar að flétta matið inn í vinnuna.
Sjá nánar:Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana og lög um umhverfismat áætlana.
|
|