| | Hvaða áætlanir falla undir lög um umhverfismat áætlana ? |
| | Lögin taka til skipulagsáætlana og framkvæmdaáætlana sem uppfylla öll eftirtalin skilyrði:
- Eru undirbúnar og/eða samþykktar af stjórnvöldum.
- Eru unnar samkvæmt lögum eða ákvörðun ráðherra.
- Marka stefnu er varðar leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Framangreind skilyrði geta varðað áætlanir sem fjalla um
- landbúnað
- skógrækt
- fiskeldi
- orkumál
- iðnað
- samgöngur
- meðhöndlun úrgangs
- vatnsnýtingu
- fjarskipti
- ferðaþjónustu eða
- skipulag byggðaþróunar og landnotkunar.
Sjá nánar: Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana.
|
|