Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hver er munurinn á mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismati áætlana ?
  Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vísar til mats á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda en um það gilda lög um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda nr. 106/2000.
Umhverfismat
áætlana vísar hinsvegar til mats umhverfisáhrifum þeirra stefnumiða og framkvæmdaáforma sem sett eru fram í tilteknum skipulags- og framkvæmdaáætlunum, sbr.lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Viðfangesefni umhverfismats á áætlana er að greina strax í mótunarferli viðkomandi áætlunar, hvaða umhverfisáhrif framfylgd hennar og framkvæmdir sem af henni leiða munu hafa. Umhverfismat áætlana er almennt ekki eins ítarlegt og mat á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda en í umhverfismati áætlana gefst tækifæri til að fjalla um umhverfisáhrif grundvallar-valkosta og meta samlegðaráhrif margra framkvæmda, sem oft á tíðum er ekki raunhæft er að gera þegar umhverfisáhrif einstakra framkvæmda eru metin.

Í þeim tilvikum sem stefnumörkun áætlunar felur í sér eða hefur í för með sér framkvæmdir sem háðar eru lögum um mat á umhverfisáhrifum skulu þær framkvæmdir fara í mat á umhverfisáhrifum samkvæmt þeim lögum óháð því að fjallað hafi verið um umhverfisáhrif þeim tengd í umhverfismati skipulagstillögu.

Umhverfismat áætlunar, þ.m.t. skipulagstillögu, getur fyrst og fremst þjónað sem aðdragandi að mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og getur þannig orðið til þess að afmarka betur viðfangsefni framkvæmdamatsins og gera það markvissara, en kemur ekki alfarið í stað þess.

Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda ,
leiðbeiningar um umhverfismat áætlana og
leiðbeiningar um gerð aðalskipulags.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is