Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvenær er þörf á framkvæmdaleyfi ?
  Meiriháttar framkvæmdir sem ekki eru háðar byggingarleyfi eru framkvæmdarleyfisskyldar. Framkvæmdir teljast meiriháttar þegar þær vegna eðlis eða umfangs hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess.

Dæmi um framkvæmdaleyfisskyldar framkvæmdir eru meiriháttar framkvæmdir við götur, holræsi, vegi og brýr, aðrar en göngubrýr í þéttbýli, jarðgöng, flugbrautir, dreifi- og flutningskerfi veitna og fjarskipta, hafnir, virkjanir, efnistaka og sorpförgun.

Við mat á framkvæmdaleyfisskyldu annarra framkvæmda ber að hafa í huga stærð og umfang framkvæmdar, eðli hennar, varanleika og áhrif á ásýnd umhverfisins. Þá skiptir máli hvort framkvæmdin er líkleg til að valda hættu eða hafa áhrif á hagsmuni annarra.

Framkvæmdir sem eru háðar lögum um mat á umhverfisáhrifum eru framkvæmdaleyfisskyldar.

Sjá nánar: Leiðbeiningablað Skipulagsstofnunar nr. 7.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is