| | Hver er munurinn á svæðis-, aðal- og deiliskipulagi? |
| | Svæðisskipulag tekur til tveggja eða fleiri sveitarfélaga, aðalskipulag til eins sveitarfélags og deiliskipulag til tiltekins svæðis innan sveitarfélags, s.s. eins hverfis eða afmarkaðs reits.
Meginhlutverk svæðisskipulags er að samræma stefnu sveitarfélaga í skipulagsmálum í þeim tilvikum þegar tvö eða fleiri sveitarfélög telja þörf á að marka sameiginlega stefnu um landnotkun almennt eða um einstaka málaflokka.
Hlutverk aðalskipulags er að setja fram stefnu sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í viðkomandi sveitarfélagi.
Deiliskipulag nær til einstakra svæða innan sveitarfélags og þar eru nánari ákvæði um notkun og nýtingu svæða og einstakra lóða, gerð og útlit byggðar og umhverfis, áfangaskiptingu, verndun o.fl. Deiliskipulag er grundvöllur bygginga- og framkvæmdaleyfa. |
|