Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hver er réttur minn til þátttöku og kynningar við skipulagsgerð?
  Við mótun skipulagstillögu er sveitarstjórnum skylt að leita eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa og annarra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta um mörkun stefnu, áherslur og skipulagsmarkmið.

Á lokastigum skipulagsgerðar er skylt að kynna skipulagstillögu fyrir almenningi.
Tillögu að nýju svæðisskipulagi og aðalskipulagi og verulegri breytingu á þeim, er skylt að kynna á almennum fundi áður en samþykkt er að auglýsa tillöguna.
Tillögu að deiliskipulagi og óverulegum breytingum á svæðis- og aðalskipulagi er ekki skylt að kynna með sama hætti áður en formlegur kynningartími og athugasemdafrestur hefst.
Tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi má kynna með svokallaðri grenndarkynningu í stað þess að hún sé auglýst. Sjá svör við spurningu um muninn á auglýsingu og grenndarkynningu.

Sjá nánar: Leiðbeiningablöð Skipulagsstofnunar nr. 2, 3, 4 og 8 Leiðbeiningablöð Skipulagsstofnunar nr. 2, 3, 4 og 8
og skipulagsreglugerð.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is