| | Hver er kæruréttur almennings vegna skipulags og leyfisveitinga og hvernig er staðið að kæru? |
| | Samþykkt sveitarstjórnar um deiliskipulag, byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi er hægt að kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, telji kærandi ákvörðunina varða lögvarða hagsmuni sína.
Kærufrestur er einn mánuður frá því kæranda var kunnugt eða mátti vera kunnugt um samþykktina. Ef um er aða ræða ákvörðun sem sætir opinberri birtingu þá telst kærufrestur frá birtingu ákvörðunar.
Kæra til úrskurðarnefndar skal vera skrifleg og í henni skal greina skýrt frá úrskurðarefninu, kröfu aðila og rökstuðningi fyrir henni.
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála ber að kveða upp úrskurð í kærumáli eins fljótt og kostur er og jafnan innan þriggja mánaða frá því henni barst kæra. Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til umhverfisráðherra.
Skipulagsáætlanir sem staðfestar eru af umhverfisráðherra, þ.e. svæðis- og aðalskipulag, er ekki hægt að kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Sjá nánar: 8. gr. skipulags- og byggingarlaga og
reglugerð um úrskurðanefnd. |
|