Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvernig geri ég athugasemdir við skipulagstillögu og hvað verður um athugasemdir mínar?
  Athugasemdir við skipulagstillögu skulu stílaðar á viðkomandi sveitarstjórn og sendar skriflega (með bréfi eða tölvupósti) til þess staðar og innan þess tímafrests sem tilgreindur er í auglýsingu um tillöguna.

Að afloknum auglýsingartíma skipulagstillögu tekur sveitarstjórn afstöðu til athugasemda og ákveður hvort þær gefa tilefni til breytinga á tillögunni.

Síðan er tillagan samþykkt með eða án breytinga og rökstudd svör send til þeirra sem gerðu athugasemdir.

Samþykkt skipulag er síðan sent Skipulagsstofnun til umsagnar sem þá fer m.a. yfir hvort athugasemdum hafi verið svarað með fullnægjandi hætti. Stofnunin getur kallað eftir frekari svörum ef ástæða þykir til.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is