Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hver er munurinn á grenndarkynningu og auglýsingu skipulagstillögu?
  Í báðum tilvikum er um að ræða formlega kynningu á skipulagstillögu þar sem hagsmunaaðilum er gefinn kostur á að gera athugasemdir innan tilskilins frests.

Auglýsingu skipulagstillögu er beitt þegar um er að ræða nýjar skipulagstillögur, breytingar á svæðis- og aðalskipulagi eða verulegar breytingar á deiliskipulagi. Í þeim tilvikum er auglýsing um tillöguna birt með áberandi hætti s.s. í dagblaði sem dreift er á landsvísu, auk þess sem skylt er að birta auglýsinguna í Lögbirtingarblaðinu. Tillagan er síðan til sýnis á tilgreindum stað í að lágmarki fjórar vikur og athugasemdafrestur er að lágmarki sex vikur.

Grenndarkynningu er beitt við óverulegar breytingar á deiliskipulagi og felst í að þeir sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta fá send kynningargögn frá skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. Athugasemdafrestur er fjórar vikur að lágmarki. Þó er heimilt að stytta athugasemdarfrestinn hafi allir þeir sem fengu send gögn undirritað samþykki sitt á grenndarkynningargögnin og skilað innan fjögurra vikna. Breytingin tekur gildi þegar sveitarstjórn hefur samþykkt hana og birt auglýsingu þar um í B-deild Stjórnartíðinda.

Grenndarkynningu er einnig unnt að beita vegna stakra framkvæmda í þegar byggðum hverfum þar sem deiliskipulag er ekki fyrir hendi, ef fyrirhuguð framkvæmd víkur ekki í verulegum atriðum frá notkun, nýtingu eða yfirbragði hverfisins. Ferlið er það sama og við grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi nema því lýkur með afgreiðslu skipulags- og/eða byggingarnefndar en ekki með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is