Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað

 
Auglýsing um skipulag - Mýrdalshreppur
Tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Skipulagsgögn eru skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdrættir og umhverfisskýrsla. Ennfremur eru kynntar athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillöguna sbr. 3. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, Vík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps:www.vik.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdalshrepps.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Tillaga að deiliskipulagi þjónustusvæða við Sólheimajökul og í Reynisfjöru.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögur að deiliskipulagi þjónustusvæða fyrir ferðamenn við Sólheimajökul og í Reynisfjöru skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Sólheimajökull.
Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Sólheimajarða. Svæðið er í um 300 m fjarlægð frá Sólheimajökli. Gert er ráð fyrir að byggð verði ferðamannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m². Aðkoma að svæðinu er um núverandi veg að Sólheimajökli.

Reynisfjara.
Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Reynishverfisjarða.Gert er ráð fyrir að byggð verði ferðamannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m². Aðkoma að svæðinu er um Reynishverfisveg.

Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17, Vík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps: www.vik.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdalshrepps.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir þeim.

Sveinn Pálsson sveitarstjóri

(innf. 22. desember 2009)

Til baka













 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is