Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 

21. júní 1994 / Nr. 353

Gjaldskrá

vegna mats á umhverfisáhrifum

 

1. gr.

Embætti skipulagsstjóra ríkisins skal innheimta gjald af framkvæmdaraðilum vegna kostnaðar embættisins af málsmeðferð samkv. 7., 8., 10. og 11. gr. laga nr. 63/1993, sbr. 9. - 18. gr. reglugerðar nr. 179/1994.

Framkvæmdaraðili skal greiða sérstakt gjald við frumathugun og aðra athugun fari hún fram.

2. gr.

Gjaldið skal vera kr. 4.900 fyrir hverja unna klukkustund hvers sérfræðings.

Til viðbótar kemur útlagður kostnaður Skipulags ríkisins vegna málssins s.s. ferðakostnaður, auglýsingakostnaður o.þ.h. skv. viðurkenndum reglum þar sem það á við en annars skv. framlögðum reikningum.

3. gr.

Heimilt er embætti skipulagsstjóra ríkisins að kerfjast fyrirframgreiðslu allt að kr. 150.000 vegna hvorrar athugunar sbr. 1. gr. Gjaldið kemur í slíkum tilvikum því aðeins til endurgreiðslu að svo miklu leyti sem kostnaður embættisins af verkinu er minni en sem því nemur.

4. gr.

Áður en embætti skipulagsstjóra ríkisins hefur málsmeðferð skv. 9. - 12. gr. eða 13. - 18. gr. reglug. nr. 179/1994 skal það semja sundurliðaða áætlun um kostnað þess af málsmeðferð og senda framkvæmdaraðila.

Eftir að úrskurður hefur gengið skv. 12. eða 18. gr. reglugerðar nr. 179/1994 skal embætti skipulagsstjóra gera upp heildarkostnað við verkið, sundurliða hann og senda til framkvæmdaraðila. Rökstyðja þau frávik frá upphaflegri áætlun sem leiða til hækkunar.

5. gr.

Gjalddagi er 15 dögum eftir útsendingu reiknings. Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga. Um greiðslu dráttarvaxta fer skv. II. kafla vaxtalaga nr. 25/1987.

6. gr.

Heimilt er embætti skipulagsstjóra ríkisins að krefjast tryggingar fyrir skilvísri greiðslu skv. gjaldskrá þessari, eftir að áætlun sbr. 4. gr. liggur fyrir og áður en mat hefst, ekki síst þar sem fyrirsjáanlegt er að mat verður viðamikið og kostnaðarsamt.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem sett er skv. 12. gr. laga nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, öðlast gildi þegar í stað.

Umhverfisráðuneytið 21. júní 1994.

Össur Skarphéðinsson.

 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is