Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 
Auglýsing um skipulag - Hörgárbyggð
Sveitarstjórn Hörgárbyggðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hörgárbyggðar 2006-2026. Tillaga er þríþætt: a. Í tillögunni er gert ráð fyrir breyttri legu á fyrirhugaðri Blöndulínu 3 um Kræklingahlíð og Moldhaugaháls frá því sem gert er ráð fyrir í gildandi aðalskipulagi. Skv. tillögunni færist lína ofar í hlíðina og fjær byggðinni. Frá Moldhaugahálsi að Miðlandi í Öxnadal er gert ráð fyrir minniháttar tilfærslu á nokkrum stöðum á línunni miðað við gildandi aðalskipulag. b. Í tillögunni er gert ráð fyrir breyttri legu á um 3,8 km kafla.....    öll fréttin
(innf. 4. júní 2010)
Austurleið (F-923) um Hrafnkelsdal, Fljótsdalshéraði
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um tillögu Vegagerðarinnar að matsáætlun Austurleiðar (F-923) um Hrafnkelsdal, Fljótsdalshéraði. Fallist er á tillöguna með athugasemdum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 3. júní 2010)
Snæfellsnesvegur (54) um Fróðárheiði, frá Valavatni til Útnesvegar (574)
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging Snæfellsnesvegar um Fróðárheiði, frá Valavatni að Útnesvegi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 1. júlí 2010.Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 31. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Blönduósbær
Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010-2030. Bæjarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum 25. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að aðalskipulagi Blönduósbæjar fyrir tímabilið 2010-2030, samkv. 1. málsgrein 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu vera til sýnis á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi frá 28. maítil 25. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.blonduos.is þar sem jafnframt er skýrsla vegna fornleifaskráningar. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila.....    öll fréttin
(innf. 28. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Sveitarfélagið Skagaströnd
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagastrandar 2010-2022. Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum 10. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að aðalskipulagi Skagastrandarfyrir tímabilið 2010 til 2022, samkvæmt 1. málsgrein 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is, þar sem jafnfram er skýrsla vegna fornleifaskráningar. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna......    öll fréttin
(innf. 26. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Skaftárhreppur
Aðalskipulag Skaftárhrepps 2010-2022. Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti á fundi sínum 18. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að endurskoðun á aðalskipulagi Skaftárhrepps fyrir tímabilið 2010-2022, samkv. 1. málsgrein 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu vera til sýnis á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15 á Kirkjubæjarklaustri frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu Skaftárhrepps www.klaustur.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofu.....    öll fréttin
(innf. 26. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Seyðisfjarðarkaupstaður
Aðalskipulag Seyðisfjarðar 2010 - 2030. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Seyðisfjarðar 2010 – 2030, skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Aðalskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði, Hafnargötu 44, Seyðisfirði frá og með fimmtudeginum 27. maí nk. til mánudagsins 28. júní 2010. Tillagan er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 Reykjavík og á vefsíðu Seyðisfjarðarkaupstaðar, seydisfjordur.is á sama tíma. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 12. júlí 2010. Skila skal.....    öll fréttin
(innf. 26. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Húnavatnshreppur
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps samþykkti á fundi sínum 18. maí 2010 að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010 – 2022. Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við aðalskipulagstillöguna. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla liggja frammi á skrifstofu Húnavatnshrepps frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur verða gögnin, ásamt skýrslum vegna fornleifaskráningar, aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunavatnshreppur.isog hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum eða á netföngin jens@emax.is og hunavatnshreppur@emax.is, merkt aðalskipulag, fyrir 7. júlí 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni......    öll fréttin
(innf. 26. maí 2010)
Aukin framleiðsla á bleikju og laxaseiðum hjá Fiskeldinu Haukamýrargili ehf., Norðurþingi
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin framleiðsla á bleikju og laxaseiðum hjá Fiskeldinu Haukamýrargili ehf., Norðurþingi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 26. júní 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
(innf. 21. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Norðurþing
Tillaga að aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Jafnframt er auglýst umhverfisskýrsla um tillöguna í samræmi við 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Í tillögunni er sett fram stefna um byggðaþróun, landnotkun og umhverfismál fyrir allt landsvæði Norðurþings; dreifbýli og þéttbýli. Í umhverfisskýrslu með tillögunni er gerð grein fyrir forsendum stefnunnar og líklegum áhrifum hennar á umhverfið. Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á eftirtöldum stöðum frá og með 20. maí til 18. júní 2010: Stjórnsýsluhúsi, Ketilsbraut 7-9, Húsavík. Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu.....    öll fréttin
(innf. 21. maí 2010)
Tillaga að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir hér með, skv. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007, tillögu að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Jafnframt er auglýst umhverfisskýrsla um tillöguna í samræmi við 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan er unnin í samræmi við 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð og byggir á tillögum að verndaráætlun, unnum af svæðisráðum fjögurra rekstrarsvæða þjóðgarðsins, og á samráði við fjölmarga aðila. Stjórnunar- og verndaráætlunin er stefnumótandi áætlun um stjórnun, skipulag, náttúruvernd og aðra landnotkun í þjóðgarðinum. Mannvirkjagerð, stíga- og slóðagerð og hvers konar efnistaka innan Vatnajökulsþjóðgarðs er einungis heimil ef gert er ráð fyrir henni.....    öll fréttin
(innf. 17. maí 2010)
Opið hús álver og orkuöflun kynnt í dag, mánudaginn 10. maí
Síðasta opna húsið í kynningu álvers á Bakka, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar og háspennulína frá virkjunum að Bakka er á hótel Hilton Reykjavík Nordica í dag, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19. Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en þær eru aðgengilegar til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og.....    öll fréttin
(innf. 10. maí 2010)
Jarðgerð Gámaþjónustunnar, Hafnarfirði
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að jarðgerð Gámaþjónustunnar hf, Berghellu 1, Hafnarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 8. júní 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér.
(innf. 6. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Uppsveitum Árnessýslu og Flóahreppi
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi Hér má sjá auglýsinguna í heild Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
(innf. 5. maí 2010)
Urðun og efnistaka við Sölvabakka, Blönduósbæ
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Að áliti Skipulagsstofnunar verða neikvæð áhrif urðunar og efnistöku fyrst og fremst við bæinn Sölvabakka í Refasveit. Þau muni felast í sjónrænum áhrifum frá bæjarhúsum þar og hættu á að íbúar á Sölvabakka verði varir við lyktarmengun frá urðunarstaðnum, einkum þegar norðlægir vindar blása að sumarlagi. Neikvæð sjónræn áhrif í nágrenni urðunarstaðarins verði mest meðan á uppbyggingu hans standi en þau verði minni á rekstrartíma. Fjarlægð urðunar frá bæjarhúsum á Sölvabakka verður nálægt lágmarksskilyrðum reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs og því telur Skipulagsstofnun brýnt að.....    öll fréttin
(innf. 5. maí 2010)
Svæðisskipulag Suðurnesja 2008 - 2024
Haldinn var fundur um leiðarljós svæðisskipulags Suðurnesja 2008 - 2024, mánudaginn 3. maí. Hér má sjá kynningarglærur frá fundinum. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
(innf. 4. maí 2010)
Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal, Fljótsdalshéraði
Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna lagningu austurleiðar (F923) um Hrafnkelsdal, Fljótsdalshéraði. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 3. maí til 18. maí 2010 hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 18. maí 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Tillöguna má einnig sjá hér
(innf. 4. maí 2010)
Fundur í Reykjahlíðarskóla í dag, 4. maí 2010
Síðasta opna húsið í kynningarlotunni í Þingeyjarsýslum er í Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit, í dag, þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16 til 19. Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Í næstu viku verður kynningarfundur á hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19. Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en þær eru aðgengilegar til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á.....    öll fréttin
(innf. 4. maí 2010)
Líparítvinnsla í Hvalfirði
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf, f.h. Sementsverksmiðjunnar á Akranesi, hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Líparítvinnlsu í Hvalfirði í Hvalfjarðarsveit. Frummatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 3. maí til 22. júní 2010 á skrifstofum Hvalfjarðarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi 22. júní 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Frummatsskýrsluna má einnig sjá hér
(innf. 3. maí 2010)
Auglýsing um skipulag - Grindavíkurbær
Bæjarstjórn Grindavíkur auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2000-2020 samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin lýtur að stækkun Vatnsskarðsnámu. Samkvæmt staðfestu aðalskipulagi er efnistaka á svæðinu á 21,4 ha svæði. Sú breyting er gerð á aðalskipulaginu að efnistökusvæðið er stækkað í samtals 81,2 ha og er gert ráð fyrir að þaðan sé tekið allt að 25 milljónir m3 á næstu 25 árum. Svæðið sem fer undir stækkun efnistöku er óbyggt svæði. Ástæður skipulagsbreytingarinnar eru viðvarandi eftirspurn eftir jarðefnum sem best er mætt með stækkun núverandi náma frekar en opnun nýrra náma með.....    öll fréttin
(innf. 3. maí 2010)
Álver, virkjanir og háspennulínur - kynningarfundir í dag, mánudaginn 3. maí
Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Opið hús, þar sem framkvæmdaraðilar munu kynna frummatsskýrslurnar, verður á eftirtöldum stöðum: Í Ýdölum, Aðaldal, mánudaginn 3. maí frá kl. 15 til 18 Á Fosshótel Húsavík mánudaginn 3. maí frá kl. 20 til 23 Í Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit, þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16 til 19 Á hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19 Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en.....    öll fréttin
(innf. 3. maí 2010)
Frummatsskýrslur í kynningu: álver á Bakka, Þeistareykjavirkjun, Krafla II og háspennulínur milli álvers og virkjananna
Hafin er kynningartími fyrir frummatsskýrslur vegna álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, allt að 200 MW Þeistareykjavirkjunar, allt að 150 MW Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík. Landsvirkjun, Þeistareykir ehf., Landsnet og Alcoa hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslur um Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, álver á Bakka og sameiginlegt mat þessara framkvæmda. Tillögur að ofangreindum framkvæmdum og skýrslur um mat á umhverfisáhrifum liggja frammi til kynningar frá 30. apríl til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni.....    öll fréttin
(innf. 30. apríl 2010)
Dettifossvegur, tengingar að Hólmatungum og Vesturdal/Hljóðaklettum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytingar á tengingum frá Dettifossvegi að Hólmatungum og Vesturdal/Hljóðaklettum skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 28. maí 2010.Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 28. apríl 2010)
Svæðisskipulag Suðurnesja 2008 - 2024
Kynningarfundur um leiðarljós svæðisskipulags Suðurnesja verður haldinn mánudaginn 3. maí kl. 17:30 - 18:30 í fyrirlestrarsal íþróttaakademíunnar við Krossmóa 58 í Reykjanesbæ. sjá nánar Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
(innf. 28. apríl 2010)
Skálasvæði við Álftavatn í Rangárþingi ytra
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging skálasvæðis við Álftavatn í Rangárþingi ytra skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 28. maí 2010. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má sjá í heild sinni hér
(innf. 27. apríl 2010)
Efnistaka við Stóru-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Að áliti Skipulagsstofnunar eru helstu neikvæðu áhrif efnistöku við Stóru-Fellsöxl sjónræns eðlis. Þó efnistakan hafi í för með sér varanlegar breytingar á landslagi svæðis í nágrenni við fjölfarinn þjóðveg þá verða áhrifin staðbundin á tiltölulega umfangslitlu svæði. Á þetta við hvort sem gert er ráð fyrir efnistöku á núverandi efnistökusvæði og fullnýtingu þess skv. valkosti 1 eða stækkun efnistökusvæðisins skv. valkostum 2 og 3. Skipulagsstofnun telur jafnframt þau áform framkvæmdaraðila að ganga frá svæðinu í áföngum eftir því sem efnistökunni vindur fram vera til þess fallin.....    öll fréttin
(innf. 21. apríl 2010)
Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga um skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum
Vegna sveitarstjórnakosninganna í vor hefur verið ákveðið að flytja árlegan samráðsfund Skipulagsstofnunar með sveitarfélögunum til haustsins eða til 16. og 17. september og verður hann haldinn á höfuðborgarsvæðinu. Þar verður sem áður farið yfir þau málefni sem Skipulagsstofnun telur brýnt að koma á framfæri við sveitarfélögin og rætt það sem brennur á sveitarfélögunum. Skipulagsstofnun óskar eftir ábendingum og óskum sveitarfélaga um umræðuefni fundarins. Vinsamlega sendið ábendingar á netfangið: skipulag@skipulag.is Dagskrá verður kynnt síðar.
(innf. 21. apríl 2010)
Auglýsing um skipulag - Húnaþing vestra
Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 - Miðfjarðarvegur Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 6. maí 2009 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felur í sér tilfærslu á Miðfjarðarvegi með það markmið að auka umferðaröryggi. Annars vegar er um að ræða nýja vegtengingu við hringveg og hins vegar er vinkilbeygja vestan við Staðarbakka aflögð. Vegna tilfærslu á gatnamótum við hringveg þarf að minnka opið svæði til sérstakra nota (golfvöllur) úr 79,3 ha í 72 ha. Skipulagsuppdráttur með greinargerð mun liggja.....    öll fréttin
(innf. 16. apríl 2010)
Lokað á Skipulagsstofnun milli kl. 9 og 11 á mánudagsmorgun
Mánudaginn 19. apríl nk. verður afgreiðsla Skipulagsstofnunar lokuð milli kl. 9 og 11. Ástæða lokunarinnar er innanhúss námskeið sem allir starfsmenn sitja. Skipulagsstofnun vonar að ekki komi til óþæginda vegna þessa.
(innf. 16. apríl 2010)
Auglýsing um skipulag - Austur-Húnavatnssýsla
Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi Austur - Húnavatnssýslu 2004-2016 og deiliskipulag fyrir þéttbýli á Húnavöllum í Húnavatnshreppi. Framlenging á auglýsingatíma. Frestur til að gera athugasemd við áður auglýsta breytingu á svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu og deiliskipulagi á Húnavöllum framlengist hér með til 20. maí 2010. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur Húnavatnssýslu. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
(innf. 12. apríl 2010)





































 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is