| |
BYGGINGAR OG FRAMKVÆMDIR
Byggingarmál eru víðtækur málaflokkur sem margir opinberir aðilar koma að. Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi byggingarmál er fyrst og fremst að veita leiðbeiningar og umsagnir um byggingarmál, og annast og stuðla að rannsóknum og útgáfu um byggingarmál. Skipulagsstofnun afgreiðir einnig umsóknir sveitarstjórna um meðmæli með stökum framkvæmdum þar sem ekki liggur fyrir skipulag. Hér hefur verið tekið saman yfirlit yfir þá aðila sem fara með byggingarmál með einum eða öðrum hætti.
Byggingarleyfi
Byggingarleyfi er heimild sem sveitarstjórn veitir til tiltekinna framkvæmda, oftast byggingarframkvæmda, sem ekki er heimilt að hefja fyrr en að útgefnu leyfinu. Flestar byggingarframkvæmdir og verklegur undirbúningur þeirra eru leyfisskyldar en einnig aðgerðir sem ekki fela endilega í sér framkvæmdir, t.d. breyting á notkun húsnæðis. Nánari upplýsingar um byggingarleyfi er að finna í leiðbeiningablaði Skipulagsstofnunar um byggingarleyfi .
Framkvæmdaleyfi
Meiriháttar framkvæmdir, sem ekki eru háðar byggingarleyfi, eru háðar framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar. Framkvæmdir teljast meiriháttar þegar þær vegna eðlis eða umfangs hafa veruleg áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess. Nánari upplýsingar um framkvæmdaleyfi er að finna í leiðbeiningablaði Skipulagsstofnunar um framkvæmdaleyfi.
Byggingar- og framkvæmdaleyfi þar sem ekki liggur fyrir skipulag
Byggingar- og framkvæmdaleyfi skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir. Þannig skulu byggingarleyfi vera í samræmi við aðal- og deiliskipulag og
framkvæmdaleyfi í samræmi við aðalskipulag og eftir atvikum einnig deiliskipulag. Byggingar- og framkvæmdaleyfi skulu ennfremur vera í samræmi við
svæðisskipulag þar sem það liggur fyrir. Í bráðabirgðaákvæði í skipulags- og byggingarlögum er sveitarstjórnum þó gert mögulegt að heimila einstakar
framkvæmdir að fengnum meðmælum Skipulagsstofnunar án þess að fyrir liggi aðal-, svæðis- eða deiliskipulag. Nánari upplýsingar er að finna í leiðbeiningablaði Skipulagsstofnunar um leyfi til framkvæmda án þess að fyrir liggi aðal-, svæðis- eða deiliskipulag.
|
|