Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvert er hlutverk úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna matsskyldra framkvæmda?
  Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála kveður upp úrskurði í ágreiningsmálum um skipulags- og byggingarmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Jafnframt skal úrskurðarnefndin kveða upp úrskurði í ágreiningsmálum sem henni er falið að skera úr um á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar er kæranlegt til úrskurðarnefndarinnar og er kærufrestur 1 mánuður frá því að ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er auglýst og fer sú málsmeðferð samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi.

Þeir einir geta skotið máli til úrskurðarnefndarinnar sem eiga lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun. Sé um að ræða ákvarðanir vegna framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum eiga umhverfisverndar- og hagsmunasamtök sem varnarþing eiga á Íslandi jafnframt sama rétt, séu félagsmenn samtakanna 30 eða fleiri.

Kærandi getur krafist úrskurðar um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða séu þær hafnar eða yfirvofandi. Komi fram krafa um slíkt skal úrskurðarnefnd svo fljótt sem verða má kveða upp úrskurð um það atriði. Úrskurði um stöðvun framkvæmda ber sveitarstjórn að framfylgja þegar í stað, með aðstoð lögreglu ef með þarf.























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is