Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvaða leyfa þarf að afla vegna framkvæmda og starfsemi sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum?
  Leyfi til framkvæmda og starfsemi, t.d. framkvæmdaleyfi, byggingarleyfi, starfsleyfi og rekstrarleyfi, eru veitt í kjölfar þess að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun Skipulagsstofnunar um að framkvæmd þurfi ekki að sæta mati liggur fyrir.

Framkvæmdaraðila er óheimilt að hefja framkvæmdir áður en þau leyfi sem til þarf hafa verið gefin út. Framkvæmdaraðili þarf að fara að þeim kröfum sem settar eru fram í leyfum. Skilyrði í leyfum þurfa eðli málsins samkvæmt að skila sér til þeirra verktaka sem síðan vinna að framkvæmdinni á framkvæmdastað.

Dæmi um leyfisveitendur og leyfi:
  • Sveitarstjórn veitir framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi
  • Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi til framkvæmda og starfsemi sem geta haft í för með sér mengun og leyfi til framkvæmda á friðlýstum svæðum (http://www.ust.is)
  • Heilbrigðiseftirlit sveitarfélags veitir leyfi til framkvæmda og starfsemi sem eru starfsleyfisskyld skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (http://www.ust.is/Mengunarvarnir/Heilbrigdiseftirlit)
  • Iðnaðarráðherra veitir m.a. rannsókna- og nýtingaleyfi jarðrænna auðlinda, nýtingaleyfi á efnum á, í eða undir hafsbotni og virkjanaleyfi skv. raforkulögum (http://www.idnadarraduneyti.is)
  • Veiðimálastjóri veitir rekstrarleyfi til eldis laxfiska (http://www.landbunadarstofnun.is)
  • Fiskistofa veitir leyfi til eldis nytjastofna sjávar (http://www.fiskistofa.is)
  • Fornleifavernd ríkisins veitir leyfi til framkvæmda ef raska á fornminjum (http://www.fornleifavernd.is).
    Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda























     
     
    Skipulagsstofnun
    Laugavegi 166
    150 Reykjavík
    sími: 595 4100
    fax: 595 4165
    tölvupóstur: skipulag@skipulag.is