Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hvernig er staðið að undirbúningi og auglýsingu framkvæmdaleyfis vegna matsskyldrar framkvæmdar?
  Umsókn og leyfisveiting:
Framkvæmdaraðili sendir sveitastjórn matsskýrslu með umsókn sinni um framkvæmdaleyfi eftir að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar liggur fyrir. Við útgáfu leyfis þarf sveitastjórn að:
    • Kynna sér matsskýrslu um framkvæmdina og kanna hvort framkvæmdin sé sú sama og lýst er í matsskýrslu.
    • Taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
    • Taka afstöðu til þess hvort framkvæmdin sé í samræmi við skipulagsáætlanir.
Víki sveitastjórn frá niðurstöðum í áliti Skipulagsstofnunar þarf að færa rök fyrir því í framkvæmdaleyfinu.

Auglýsing:
Sveitarstjórn þarf að auglýsa ákvörðun sína um útgáfu framkvæmdaleyfis innan 2 vikna frá útgáfu þess:

    • Í Lögbirtingablaðinu og
    • í dagblaði sem gefið er út á landsvísu.
Í auglýsingunni þarf að koma fram:
    • Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu leyfis og afstaða hennar til álits Skipulagsstofnunar.
    • Hver hafi verið niðurstaða álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.
    • Hvar unnt sé að nálgast leyfið og álit Skipulagsstofnunar.
    • Hvert sé unnt að kæra og hver sé kærufrestur.
Sveitastjórn sendir Skipulagsstofnun afrit af framkvæmdaleyfinu eftir að það hefur verið gefið út.

Kæra og kærufrestur:
Framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar er kæranlegt til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og er kærufrestur einn mánuður frá því leyfið var auglýst.

Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda

























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is