Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hversu langan tíma tekur ferli við ákvörðun um matsskyldu framkvæmda?
  Eftir að Skipulagsstofnun hefur borist tilkynning um matsskyldu frá framkvæmdaraðila hefur stofnunin 4 vikur til að gefa út ákvörðun sína. Þessi tími er þó háður því að umsagnir fagstofnana og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim berist innan tilskilins tímafrests.

Kærufrestur er 1 mánuður frá tilkynningu um ákvörðun Skipulagsstofnunar og skal kæra lögð fram til umhverfisráðherra innan þess tíma. Frá lokum kærufrests hefur ráðherra 2 mánuði til að kveða upp rökstuddan úrskurð um kærur. Úrskurður ráðherra er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi.

Sjá nánar: Yfirlit yfir ferli við ákvörðun á matsskyldu og leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is