| | Hversu langan tíma tekur ferli mats á umhverfisáhrifum framkvæmda? |
| | Matsáætlun:
Framkvæmdaraðili þarf að auglýsa og kynna tillögu að matsáætlun fyrir almenningi í a.m.k. 2 vikur áður en hún er send formlega til Skipulagsstofnunar. Eftir að framkvæmdaraðili hefur lagt fram tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar hefur stofnunin 4 vikur til að gefa út ákvörðun sína. Þessi tími er þó háður því að umsagnir fagstofnana og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim berist innan tilskilins tímafrests.
Vinna við gerð frummatsskýrslu:
Framkvæmdaraðili þarf að fylgja matsáætlun við gerð frummatsskýrslu. Vinna við matið tekur mislangan tíma, eða allt frá nokkrum mánuðum í 2 ár, eftir eðli og umfangi framkvæmdar og þess umhverfis sem hún hefur áhrif á.
Frummatsskýrsla, matsskýrsla og álit Skipulagsstofnunar:
Þegar Skipulagsstofnun hefur tekið á móti frummatsskýrslu er hún auglýst og kynnt opinberlega fyrir almenningi í 6 vikur. Almenningur sendir athugasemdir sínar til Skipulagsstofnunar innan þessara 6 vikna. Framkvæmdaraðili vinnur úr athugasemdum almennings og umsögnum fagstofnana í matsskýrslu og getur sú vinna tekið nokkrar vikur. Eftir að framkvæmdaraðili hefur sent Skipulagsstofnun matsskýrslu hefur stofnunin 4 vikur til að gefa út álit sitt.
Leyfi:
Leyfi, t.d. framkvæmdaleyfi, byggingarleyfi, starfsleyfi og rekstrarleyfi eru veitt í kjölfar álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Leyfisveitendur, þar á meðal sveitarstjórnir, skulu birta opinberlega ákvörðun sína um útgáfu leyfis innan 2 vikna frá útgáfu þess, í Lögbirtingablaðinu og í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Þannig liggur fyrir með hvaða hætti leyfisveitandi hefur tekið afstöðu til álits Skipulagsstofnunar.
Framkvæmda- og byggingarleyfi sveitarstjórnar er kæranlegt til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsing sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis birtist.
Framkvæmdaleyfi fellur úr gildi hefjist framkvæmdir ekki innan 2 ára frá útgáfu þess
Sjá nánar: Yfirlit yfir mats- og leyfisferli og leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
|
|