| | Hvað er mat á umhverfisáhrifum framkvæmda? |
| | Mat á umhverfisáhrifum er ferli þar sem metin eru á kerfisbundinn hátt þau áhrif sem framkvæmd kann að hafa á umhverfið, áður en tekin er ákvörðun um hvort leyfa skuli framkvæmd.
Matsferlið hefst við undirbúning og hönnun á vegum framkvæmdaraðila þegar kannað er hvort um matsskylda framkvæmd sé að ræða. Sé framkvæmd matsskyld heldur ferlið áfram með því að framkvæmdaraðili vinnur að og leggur fram tillögu að matsáætlun til Skipulagstofnunar þar sem fram koma upplýsingar um hvernig staðið verði að matinu. Framkvæmdaraðili sér því næst um að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu metin samkvæmt matsáætluninni. Í kjölfarið er frummatsskýrsla lögð fram til formlegrar athugunar hjá Skipulagsstofnun. Eftir að kynningu frummatsskýrslu fyrir almenningi og álitsumleitan til umsagnaraðila lýkur gerir framkvæmdaraðili í matsskýrslu grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum og tekur afstöðu til þeirra. Í kjölfarið leggur framkvæmdaraðili fram matsskýrslu til Skipulagsstofnunar og gefur stofnunin rökstutt álit á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar ásamt því hvort matsskýrslan uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og hvort umhverfisáhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt.
Sveitarstjórnum og öðrum leyfisveitendum er óheimilt að gefa út leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir fyrr en álit Skipulagsstofnunar liggur fyrir. Við útgáfu leyfis þurfa leyfisveitendur að kynna sér matsskýrslu framkvæmdaraðila og taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Sjá nánar: Yfirlit yfir ferli mats á umhverfisáhrifum og leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
|
|