Hafið samband  |    English  |    
Skipulagsstofnun Fréttir Fréttaáskrift Spurt og svarað
 Hver er kæruheimild vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmda?
  Þeir einir geta kært til umhverfisráðherra sem eiga lögvarðra hagsmuna að gæta tengda ákvörðunum Skipulagsstofnunar í þeim tilgangi að fá þær felldar úr gildi eða fá þeim breytt. Þetta eru t.d. landeigendur, nágrannar og veiðirétthafar. Sama réttar njóta umhverfisverndar- og hagsmunasamtök með 30 félagsmenn eða fleiri.

Ákvörðun um matsskyldu og ákvörðun um að umhverfisáhrif fleiri en einnar matsskyldrar framkvæmdar skuli metin sameiginlega:
Þeir sem eiga lögvarðra hagsmuna að gæta er heimilt að kæra þessar ákvarðanir Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra. Kærufrestur er 1 mánuður frá auglýsingu um þessar ákvarðanir og skal kæra lögð fram til ráðherra innan þess tíma. Frá lokum kærufrests hefur umhverfisráðherra 2 mánuði til að kveða upp rökstuddan úrskurð um kærur sem er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi.

Ákvörðun um matsáætlun og ákvörðun um að frummatsskýrsla uppfylli ekki kröfur:
Framkvæmdaraðila er heimilt að kæra þessar ákvarðanir til umhverfisráðherra. Úrskurður ráðherra skal kveðinn upp innan 2 mánaða frá því að kærufrestur rann út.

Álit um mat á umhverfisáhrifum:
Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar er ekki kæranlegt. Hins vegar er þeim sem eiga lögvarðra hagsmuna að gæta heimilt að kæra framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar um matsskylda framkvæmd til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Kærufrestur er 1 mánuður frá því að leyfi sveitarstjórnar var auglýst.

Endurskoðun matsskýrslu:
Þeir sem eiga lögvarðra hagsmuna að gæta er heimilt að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu til umhverfisráðherra. Kærufrestur er 1 mánuður frá auglýsingu um þessa ákvörðun og skal kæra lögð fram til ráðherra innan þess tíma. Frá lokum kærufrests hefur umhverfisráðherra 2 mánuði til að kveða upp rökstuddan úrskurð um kærur, sem er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi.

Sjá nánar:Leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda























 
 
Skipulagsstofnun
Laugavegi 166
150 Reykjavík
sími: 595 4100
fax: 595 4165
tölvupóstur: skipulag@skipulag.is