| | Hvert sendi ég athugasemdir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og hvað verður um athugasemdir mínar? |
| | Athugasemdir þurfa að vera skriflegar og berast Skipulagsstofnun með bréfi, símbréfi eða tölvupósti innan auglýsts kynningartíma.
Þær athugasemdir sem berast á kynningartíma framkvæmdar eru hluti þeirra gagna sem Skipulagsstofnun tekur afstöðu til við ákvörðun um tillögu að matsáætlun og við álitsgerð um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilisfang Skipulagsstofnunar er: Laugavegur 166, 150 Reykjavík.
Netfang stofnunarinnar er: skipulag@skipulag.is.
Netföng starfsmanna er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.skipulag.is og faxnúmer stofnunarinnar er: 595-4165 |
|