| |
AÐALSKIPULAG
Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir eitt sveitarfélag og skal taka til alls lands viðkomandi sveitarfélags. Í aðalskipulagi setur sveitarstjórn fram stefnu sína um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu til minnst 12 ára. meira ...
Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi aðalskipulag
Skipulagsstofnun leiðbeinir sveitarfélögum og aðstoðar við aðalskipulagsgerð, allt frá því ákvörðun um að hefja aðalskipulagsgerð er tekin og þar til endanlegt aðalskipulag er endanlega afgreitt. Hlutverk Skipulagsstofnunar varðandi aðalskipulagsgerð sveitarfélaga felst fyrst og fremst í
- Leiðbeiningum, þróun og eftirliti
- Þátttöku í kostnaði sveitarfélaga við gerð aðalskipulags (framlag úr Skipulagssjóði)
- Umsögnum til sveitarstjórna um aðalskipulagstillögur á vinnslustigi og fyrir auglýsingu þeirra
- Umsögnum til umhverfisráðherra um samþykkt aðalskipulag fyrir staðfestingu
Leiðbeiningar um aðalskipulag
Skipulagsstofnun hefur nýlega gefið út leiðbeiningarit um gerð aðalskipulags. Auk þess liggja fyrir ýmis leiðbeiningablöðs um aðalskipulag. Í vinnslu er annað leiðbeiningarit um aðalskipulag þar sem fjallað verður um einstaka landnotkunarflokka eins og þeir eru skilgreindir í 4. kafla skipulagsreglugerðar.
Staða aðalskipulags sveitarfélaga
Hér má sjá og Stutt tölfræðiyfirlit yfir stöðuna 17.mars 2010
|
|