Umhverfisskýrsla
Umhverfismat áætlunar á að setja fram í umhverfisskýrslu. Í umhverfisskýrslu er lýst helstu stefnumiðum áætlunar og stefnumiðum og hvernig hún tengist annarri áætlanagerð. Lýsa þarf umhverfisaðstæðum og ástandi umhverfisþátta við upphaf áætlunar og sem skipta máli í tengslum við áætlunina.
Spá þarf fyrir um líkleg áhrif af framfylgd áætlunarinnar á umhverfisþætti svæðisins, einkennum þeirra, hversu lengi áhrifin eru talin vara og hvort þau hafi áhrif utan svæðisins eða á aðra áætlanagerð.
Í umhverfisskýrslu á jafnframt að leggja mat á raunhæfa valkosti við tillöguna. Rökstyðja þarf þann valkost sem ákveðið er að setja fram sem markmið í tillögunni og hvernig brugðist verður við neikvæðum umhverfisáhrifum. Umhverfisskýrsla þarf að innihalda vöktunaráætlun með áhrifum af framfylgd áætlunarinnar. Jafnframt þarf að setja fram samantekt um meginefni umhverfisskýrslunnar og sem er auðlesin fyrir almenning.
Þegar lagt er mat á umhverfisáhrif eru umhverfismarkmið stjórnvalda höfð til hliðsjónar. Umhverfisskýrsla getur verið allt frá einni blaðsíðu, sem hluti af greinargerð áætlunar eða í sér hefti. Kveðið er á um efni umhverfisskýrslu í 6. gr. laga um umhverfismat áætlana.
Umhverfisskýrsla Leiðbeiningablað 11 (3.útg. 2010)
