Matslýsing og samráð
Það á að hafa samráð við Skipulagsstofnun um umfang og áherslur í umhverfismati áætlunar, sbr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana. Í lögum um mismunandi áætlanir, t.d. skipulagáætlanir, er kveðið á um samráð við fagstofnanir og hagsmunaaðila á undirbúningsstigi áætlunar. Nýta má slíkt samráð við ákvörðun um umfang og áherslur í umhverfismati áætlunar.
Þegar frumdrög áætlunar liggja fyrir er útbúin svokölluð matslýsing. Í matslýsingu er gerð grein fyrir umhverfisaðstæðum á skipulagssvæðinu, hver helstu markmið tillögunnar eru og hvaða umhverfisþættir eru helst taldir verða fyrir áhrifum við framfylgd tillögunnar. Þá þarf einnig að gera fyrir hvaða aðferðum verður beitt við matið og hverjir koma að því. Matslýsingin er send Skipulagsstofnun til umsagnar.
Umhverfið er vítt skilgreint í þessu samhengi og nær m.a. til samfélags, heilbrigðis manna, dýra, jarðmyndana, eigna og byggingarsögulegra minja, sbr. 2. gr. laganna.
Umfang og áherslur í umhverfismati Leiðbeiningablað 10 (2. útg. 2010)
