Gögn vegna framkvæmdaleyfisumsóknar

Sækja skal skriflega um framkvæmdaleyfi til hlutaðeigandi skipulagsnefndar ásamt nauðsynlegum gögnum. Nefndin gerir síðan tillögu um afgreiðslu til sveitarstjórnar.

Með framkvæmdaleyfisumsókn þarf að fylgja gögn í þremur eintökum, eitt fyrir skipulagsfulltrúa, eitt fyrir skjalasafn sveitarfélagsins og eitt sett fyrir umsækjanda. Meðal gagna er eftirfarandi:

  • Yfirlitsuppdráttur í mælikvarða 1:50.000 - 1:5.000, eftir því sem við á og þar sem fram koma mörk framkvæmdasvæðis, tenging þess við þjóðveg, hæðarlínur og mannvirki sem fyrir eru á svæðinu.
  • Afstöðuuppdráttur í mælikvarða 1:2000 - 1:1.000, ef við á, sem sýnir nánari útfærslu mannvirkja. Huga þarf að skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi.
  • Greinargerð með lýsingu á framkvæmd og hvernig framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum og mati á umhverfisáhrifum.
  • Önnur gögn og upplýsingar sem skipulagsnefnd óskar eftir og telur nauðsynleg til að afgreiða umsóknina.


Skipulagsnefnd getur í einstaka tilfelli afgreitt umsóknir um framkvæmdaleyfi á grundvelli skýrslu og úrskurðar um mat á umhverfisáhrifum og/eða deiliskipulags enda þyki fullnægjandi grein gerð fyrir framkvæmd þar.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica