Framkvæmdaleyfi

  • Framkvæmdaleyfi er leyfi sveitarstjórnar til meiri háttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess
  • Framkvæmdaleyfi skal ávallt vera í samræmi við skipulag
  • Álit Skipulagsstofnunar þarf að liggja fyrir áður en gefið er út framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000
  • Framkvæmdaleyfi gildir í 12 mánuði frá samþykki sveitastjórnar


Afla skal framkvæmdaleyfis sveitarstjórnar vegna meiri háttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breytingar lands með jarðvegi eða efnistöku og framkvæmdir sem falla undir undir I. og II. viðauka  laga um mat á umhverfisáhrifum.

Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag getur sveitarstjórn veitt framkvæmdaleyfi að undangenginni grenndarkynningu enda sé framkvæmdin í samræmi við aðalskipulag hvað varðar landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.

Leiki vafi á því hvort framkvæmd sé háð framkvæmdaleyfi, er umsækjanda um framkvæmdarleyfi og hlutaðeigandi sveitarstjórn heimilt að leita ákvörðunar úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál, þar að lútandi.  

Óheimilt er að gefa út leyfi fyrir framkvæmd sem fellur undir lög um mat á umhverfisáhrifum fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld. Við umfjöllun um umsókn um framkvæmdaleyfi skal sveitarstjórn taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Leyfisveitandi skal birta opinberlega ákvörðun sína við útgáfu leyfis og niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis. Senda skal Skipulagsstofnun afrit af leyfisgögnum.


Nánari upplýsingar um framkvæmdaleyfi má nálgast á eftirfarandi krækjum:
Skipulagslög nr. 123/2010 
Skipulagsreglugerð 9. kafli 1.gr.
- Með fyrirvara um að vísað er til eldri skipulagslaga (nr. 73/1997)
Lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006
Lög um umhverfismat framkvæmda nr. 106/2000
Reglugerð um framkvæmdaleyfi (væntanleg)
 

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica