Byggingarleyfi
Á grundvelli nýrra laga um mannvirki nr. 160/2010 var þann 1. janúar sett á fót Mannvirkjastofnun sem tekur við málefnum Brunamálastofnunar auk verkefna er varða byggingarmál. Samhliða því verður Brunamálastofnun lögð niður og Skipulagsstofnun hættir að sjá um byggingarmál. Sjá heimasíðu Mannvirkjastofnunar
Byggingarleyfi er leyfi byggingarfulltrúa eða mannvirkjastofnunar til að byggja hús eða önnur mannvirki, breyta þeim eða rífa, eða breyta notkun þeirra útliti eða formi
- Byggingarleyfi skal vera í samræmi við skipulagsáætlanir og í sumum tilfellum einnig mat á umhverfisáhrifum
- Byggingarleyfi gildir í 12 mánuði frá samþykki sveitastjórnar
Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn mannvirkjamála og er Mannvirkjastofnun ráðherra til aðstoðar, sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Sveitarstjórn ber ábyrgð á að stjórnsýsla og eftirlit byggingarfulltrúa sé í samræmi við ákvæði laga um mannvirki.
Óheimilt er að hefja byggingarleyfisskyldar framkvæmdir án byggingarleyfis viðkomandi byggingarfulltrúa eða Mannvirkjastofnunar. Sem dæmi um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir er að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess er.
Nánari upplýsingar um byggingarleyfi má nálgast á eftirfarandi krækjum:
