Afgreiðsla áætlunar

Þegar tillaga að áætlun er tekin til endanlegrar afgreiðslu skal við umfjöllun höfð hliðsjón af umhverfisskýrslu og athugasemdum sem borist hafa við tillögu að áætlun og umhverfisskýrsluna, sbr. 9. gr. laga um umverfismat áætlana. 

Útbúa þarf greinargerð með endanlegri afgreiðslu þar sem fram kemur hvernig umhverfissjónarmið hafa verið felld inn í áætlunina og hvernig höfð hefur verið hliðsjón af umhverfisskýrslu og athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Koma þarf fram rökstuðningur með ákvörðun um endanlega áætlun með hliðsjón af niðurstöðu umhverfismatsins og í ljósi þerra valkosta sem skoðaðir voru.

Vöktunaráætlun um hvernig vöktun skuli háttað vegna líklegra verulegra umhverfisáhrifa af framkvæmd áætlunar skal veri hluti endanlegra gagna.

Þegar ábyrgðaraðili hefur afgreitt endanlega áætlun skulu eftirfarandi gögn send Skipulagsstofnun og öðrum sem fengu tillögu að áætlun og umhverfisskýrslu til sérstakrar kynningar. Varðveita á gögnin á aðgengilegan hátt.

a. Endanleg áætlun

b. Greinargerð með endanlegri afgreiðslu sbr. 9.gr. laga um umhverfismat áætlana

c. Vöktunaráætlun



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica