Aðgengi fyrir alla

Meðal markmiða skipulagslaga er að skipulagsáætlanir tryggi aðgengi fyrir alla. Með aðgengi fyrir alla er átt við að fólki sé ekki mismunað um aðgengi og almenna notkun mannvirkja á grundvelli fötlunar, skerðingar eða veikinda og það geti með öruggum hætti komist inn og út úr mannvirkjum, jafnvel við óvenjulegar aðstæður, t.d. eldsvoða.

Nánar verður kveðið á um aðgengi fyrir alla í skipulagsreglugerð og reglugerð með mannvirkjagerð. Þar til má styðjast við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 401/1998 um lágmarksákvæði og kröfur um hönnun mannvirkja og næsta umhverfis þannig að allir eigi sem greiðastan aðgang að mannvirkjum. Sveitarstjórnum ber að sjá til þes að þessum kröfum sé framfylgt.

Gefin hefur verið út handbókin Aðgengi fyrir alla, þar sem settar eru fram leiðbeiningar um hönnun bygginga og umhverfis m.t.t. aðgengis fyrir alla. Hægt er að kaupa bókina hjá Nýsköpunarmiðstöð (áður Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins (Rb)).

 

 

 



 

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica