Áætlanir háðar umhverfismati
Áætlanir sem eru undirbúnar og/eða samþykktar af stjórnvöldum, eru unnar samkvæmt lögum eða ákvörðun ráðherra og marka stefnu er varðar leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Framangreind skilyrði geta varðað áætlanir um landbúnað, skógrækt, fiskeldi, orkumál, iðnað, samgöngur, meðhöndlun úrgangs, vatnsnýtingu, fjarskipti, ferðaþjónustu eða skipulag byggðaþróunar og landnotkun.
Umhverfismat skipulagsáætlana er á ábyrgð þess sem ber ábyrgð á viðkomandi áætlun, t.d. sveitarstjórn í tengslum við skipulagsgerð. Vinna skal umhverfismatið samhliða áætlunargerðinni. Við umhverfisamtið þarf að hafa samráð við hagsmunaaðila og umhverfisskýrsla skal kynnt opinberlega samhliða viðkomandi áætlun.
