Umhverfismat áætlana

  • Umhverfismat áætlana er verklag sem koma á í veg fyrir að framfylgd skipulagsáætlana valdi neikvæðum umhverfisáhrifum.
  • Það er gert með því að meta áhrif einstakra markmiða áætlunarinnar og áætlunina í heild,  á tiltekna umhverfisþætti og með samanburði á valkostum.
  • Háðar umhverfismati eru allar áætlanir og breytingar á þeim, sem marka stefnu er varðar leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.

Umhverfismat áætlana var innleitt með lögum nr. 105/2006. Með lögunum er lögfest hér á landi tilskipun Evrópusambandsins nr. 2001/42/EB um umhverfismat tiltekinna skipulags- og framkvæmdaáætlana. Markmið laganna er að umhverfisáhrif séu metin í því skyni að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, stuðla að sjálfbærri þróun og að tekið sé tillit til sjónarmiða um umhverfisvernd við samþykkt áætlunar.



Nánari upplýsingar um umhverfismat áætlana má nálgast á eftirfarandi krækju:
Lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica